Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Mikilvćgur leikur í Kópavoginum í dag

10. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Útileikur gegn HK

Nú reynir á liđsmenn Akureyrar ađ sýna sitt rétt andlit eftir afspyrnuslakan leik í síđustu umferđ. Mótherjinn er HK sem sýndu ţađ í fyrstu umferđinni ađ ţeir eru sýnd veiđi en ekki gefin ţegar ţeir ţvert á allar spár náđu jafntefli gegn FH.

HK-liđiđ varđ fyrir óhappi ađ missa einn sinn besta mann, Daníel Berg Grétarsson í slćm meiđsli strax í annarri umferđ Olís-deildarinnar og líkur á ađ hann verđi lengi frá af ţeim sökum. HK liđiđ hefur gengiđ í gegnum töluverđar breytingar frá síđasta tímabili. Fjórir leikmenn héldu erlendis í atvinnumensku, ţeir Tandri Már Konráđsson í Tönder, Bjarki Már Gunnarsson til Aue, Bjarki Már Elísson til Eisenach og Jóhann Karl Reynisson til Ajax. Ţá fór markvörđurinn Arnór Freyr Stefánsson til ÍR, Daníel Örn Einarsson til KR og skyttan Vladimir Duric er kominn til Tyrklands. Auk ţess lagđi Vilhelm Gauti Bergsveinsson skóna á hilluna.

Ţetta er vissulega mikil blóđtaka en á móti fékk HK Helga Hlynsson frá Selfossi, Baldur Inga Agnarsson frá Fylki, Jóhann Reyni Gunnlaugsson frá Víkingi og Sigurđ Má Guđmundsson frá Selfossi, Ađalstein Gíslason frá FH, Davíđ Ágústsson frá ÍR ásamt Eyţóri Snćland frá Ţrótti.
Ţá er nýr ţjálfari međ liđiđ, sá er ekki alveg ókunnur Akureyringum, Samúel Ívar Árnason.

Liđ HK er tiltölulega ungt en ţar hafa Leó Snćr Pétursson, Atli Karl Bachmann hafa veriđ atkvćđamestir ţađ sem af er vetri en ţar fyrir utan eru reynsluboltar sem alltaf standa fyrir sínu eins og Ólafur Víđir Ólafsson og frábćr markvörđur Björn Ingi Friđţjófsson.

HK hefur alltaf veriđ erfitt heim ađ sćkja og ađalsmerki ţeirra hefur veriđ gríđarleg barátta og stemming sem hefur fleytt liđinu langt á undanförnum árum.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 í Digranesinu og hvetjum viđ alla stuđningsmenn á höfuđborgarsvćđinu til ađ mćta og styđja Akureyrarliđiđ í ţessari baráttu. Óvíst er međ ţátttöku Valţórs Guđrúnarsonar í liđi Akureyrar en hann meiddist illa á öxl í síđasta leik og er ţar skarđ fyrir skildi.

Smelltu hér til ađ fylgjast međ textalýsingu Vísir.is.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson