Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Leikur Heimir með Hömrunum á sunnudaginn?



12. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hamrarnir mæta Aftureldingu í Höllinni á sunnudag

Nú er komið að öðrum heimaleik Hamranna í 1. deild karla. Að þessu sinni mæta þeir Aftureldingu sem er með fullt hús eftir þrjá leiki í deildinni og sennilega með sterkasta liðið í deildinni að þessu sinni. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og fer fram í Íþróttahöllinni þar sem KA-heimilið er upptekið vegna 1. umferðar Íslandsmóts 6. flokks karla og kvenna.

Fjöldi fólks mætti á fyrsta heimaleik Hamranna og ekki að spurning að fjölmenni kemur á þennan leik einnig.

Eins og komið hefur fram þá ætlar Heimir Örn Árnason að leika með Hömrunum þegar hann er ekki bundinn af öðrum verkefnum. Vonast er til að Heimir geti tekið þátt í þessum leik og ekki að efa að nærvera hans mun styrkja Hamrana í þessum erfiða leik, sem hefst klukkan 15:00 eins og áður segir.


Stuð í kringum Hamrana
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson