 Kristján var magnaður í HK leiknum
| | 16. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarSport.is velur Kristján Orra einnig í úrvalslið 4. umferðarEins og við greindum frá í gær voru Kristján Orri Jóhannsson og Gunnar Malmquist Þórsson valdir í úrvalslið 4. umferðar hjá Morgunblaðinu. Nú hefur sport.is einnig birt sitt úrvalslið og þar er Kristján Orri sömuleiðis valinn besti hægri hornamaðurinn. Lið þeirra á sport.is er keimlíkt liðinu sem mbl valdi, eini munurinn er vinstri skyttan en mbl valdi þar Róbert Aron Hostert. Auk þess sem sport.is velur ekki besta varnarmann.
Lið umferðarinnar að mati sport.is: Mark: Daníel Freyr Andrésson FH Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson ÍR Hægri hornamaður: Kristján Orri Jóhannsson Akureyri Miðjumaður: Sigfús Sigfússon Fram Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson ÍR Hægri skytta: Einar Rafn Eiðsson FH Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson ÍR. Kristján Orri með eitt af níu mörkum sínum. Mynd: Ómar Örn Smith sport.is Þessu til viðbótar þá hefur handbolti.org birt sitt úrvalslið 4. umferðar og þar er Kristján Orri sömuleiðis í hægra horninu.
Lið handbolti.org er þannig skipað: Markvörður: Daníel Freyr Andrésson, FH Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson, ÍR Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson, ÍR Miðjumaður: Róbert Aron Hostert, ÍBV Hægri skytta: Einar Rafn Eiðsson, FH Hægri hornamaður: Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri. |