Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Valli verður borgaralega klæddur á fimmtudaginn

23. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Valþór verður í banni gegn Haukum

Nú liggur fyrir úrskurður Aganefndar HSÍ um að Valþór Guðrúnarson tekur út leikbann á fimmtudaginn þegar Akureyri tekur á móti Haukum. Úrskurður aganefndar var birtur í dag á vef HSÍ og er svohljóðandi:

Fundur Aganefndar HSÍ, 22. október 2013.

Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Vala Valtýsdóttir og Einar Sveinsson. Eftirtalin mál lágu fyrir fundinum og voru afgreidd:
  1. Valþór Guðrúnarson leikmaður Akureyrar fékk útilokun með skýrslu vegna brots á síðustu mínútu í leik Vals og Akureyrar í M.fl.ka 18.10.2013. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
  2. Ólafur Ægir Ólafsson leikmaður Gróttu fékk útilokun með skýrslu vegna brots á síðustu mínútu í leik Gróttu og Akureyrar í 2.fl.ka 19.10.2013. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
  3. Bjarki Jónsson leikmaður ÍH fékk útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar framkomu í leik Selfoss og ÍH í M.fl.ka. 18.10.2013. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson