 Vladi var með fimm mörk í dag
| | 7. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn FH í KaplakrikanumAkureyri sótti ekki gull í greipar FH-inga í kvöld þegar liðin mættust í Kaplakrikanum. FH byrjaði miklu betur og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og hélt góðu forskoti allt upp í stöðuna 7-3 þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Þá kom góður kippur hjá Akureyri sem skoraði þrjú mörk í röð og munurinn kominn niður í eitt mark, 7-6. Það voru hins vegar FH-ingar sem skoruðu tvö síðustu mörk hálfleiksins og höfðu því þriggja marka forystu 9-6 í hálfleik.
Sóknarleikur beggja liða var afspyrnu dapur í fyrri hálfleik eins og tölurnar bera með sér. En FH-ingar gerðu í raun út um leikinn á upphafsmínútum seinni hálfleiks en þeir skoruðu þá fimm mörk í röð og þessa átta marka forystu náði Akureyri aldrei að vinna niður neitt að gagni. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum kom smá sóknarkippur og munurinn fór niður í fimm mörk, 19-14 en FH lét ekkert slá sig út af laginu og landaði þægilegum sex marka sigri 23-17.
Varnarleikurinn var lengst af alveg þokkalegur en sóknarleikur liðsins var afspyrnuslakur, fjöldi tapaðra bolta sem FH nýtti til hins ítrasta með fjölda marka úr hraðaupphlaupum. Það var trúlega stærsti munurinn á liðunum í dag.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 6 (3 úr vítum), ), Vladimir Zejak 5, Sigþór Heimisson 3, Kristján Orri Jóhannsson,Valþór Guðrúnarson og Þrándur Gíslason með 1 mark hver. Í markinu vörðu Jovan Kukobat og Tomas Olavson 7 skot hvor.
Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson og Magnús Óli Magnússon 6 mörk hvor, Ásbjörn Friðriksson 4 (3 úr vítum), Atli Rúnar Steinþórsson, Benendikt Reynir Kristinsson og Valdimar Fannar Þórsson 2 mörk hver og Andri Berg Haraldsson 1 mark. Í markinu varði Daníel Freyr Andrésson 16 skot. Bjarni Fritzson var markahæstur í dag. Mynd: visir.is
 Sigþór Árni Heimisson átti góða spretti. Mynd: visir.is
 Vladimir sýndi að hann getur bombað á markið. Mynd: visir.is Nú þarf liðið einfaldlega að girða sig í brók fyrir næsta leik sem er einnig útileikur, gegn Fram fimmtudaginn 14. nóvember. |