Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú er bara að taka á því gegn ÍR

20. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þrándur í liði 8. umferðar hjá sport.is

Vefurinn sport.is tilkynnti á dögunum val sitt á úrvalsliði 8. umferðar Olís-deildar karla. Akureyri á einn fulltrúa í liði þeirra sport.is manna, það er línumaðurinn og varnarjaxlinn Þrándur Gíslason. Í umfjöllun þeirra um valið kemur fram að línumannsstaðan hafi verið hvað erfiðust þar sem margir línumenn spiluðu vel í umferðinni. Í rökstuðning fyrir valinu á Þrándi segir „Hann skoraði 3 mörk, var með 50% nýtingu, fiskaði víti og fékk aldrei áminningu eða brottvísun.“

Lið 8. umferðar er þannig skipað:
Markvörður: Daníel Freyr Andrésson FH
vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson ÍR
hægri skytta: Geir Guðmundsson Valur
miðja: Ásbjörn Friðriksson FH
hægra horn: Sveinn Aron Sveinsson Valur
vinstra horn: Sturla Ásgeirsson ÍR
línumaður: Þrándur Gíslason Akureyri

Við óskum Þrándi og þessum leikmönnum til hamingju með útnefninguna.


Þrándur í ham á línunni

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson