Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Halldór Logi hélt uppi merkinu á línunni í seinni hálfleik

22. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Magnađur sigur Akureyrar á ÍR í kvöld

Ţađ var heldur betur rafmögnuđ spenna í Íţróttahöllinni í kvöld ţegar Akureyri tók á móti bikarmeisturum ÍR. Akureyrarliđiđ kom nokkuđ breytt til leiks frá síđasta leik, samningi liđsins viđ Serbann Vladimir Zejek hefur veriđ sagt upp og ţví sat Vladi á međal áhorfenda í stúkunni. Ţađ var hins vegar óvćnt útspil ađ Hreinn Ţór Hauksson mćtti galvaskur til liđs viđ strákana en hann hafđi tekiđ sér smá frí frá handboltanum og var ekki vćntanlegur fyrr en eftir áramót.
Ţar ađ auki ţá var ţetta fyrsti heimaleikur ţeirra Heimis Árnasonar og Friđriks Svavarssonar á tímabilinu en ţeir hafa veriđ í röđum Hamranna á tímabilinu.

Akureyri hóf leikinn af miklum krafti, spilađ hrađan sóknarleik sem bar góđan ávöxt til ađ byrja međ auk ţess sem Jovan Kukobat var í miklum ham í markinu. Akureyri hafđi frumkvćđiđ í leiknum og leiddi međ tveim mörkum allt upp í 8-6 en ţá komu fimm ÍR mörk í röđ, ţar af ţrjú ódýr hrađaupphlaupsmörk og forysta gestanna skyndilega orđin ţrjú mörk, 8-11.


Kristján Orri skorađi fyrstu tvö mörk leiksins

En heimamenn brotnuđu ekki viđ ţetta og minnkuđu muninn niđur í eitt mark 12-13 og hélst sá munur fram ađ hálfleik en ţá var stađan 16-17 ÍR í vil.

Ţrándur Gíslason var öflugur á línnunni, međ 4 mörk, Andri Snćr og Kristján Orri međ 3, Bjarni og Valţór 2, Heimir og Sigţór Árni 1 mark hvor. Í markinu var Jovan kominn međ tólf bolta.

Akureyri hóf seinni hálfleikinn međ látum, Ţrándur Gíslason fékk reyndar sína ţriđju brottvísun og ţar međ útilokun eftir 20 sekúndna leik. Manni fćrri jöfnuđu heimamenn í 17-17 međ stórbrotnu sirkusmarki ţeirra Andra Snćs og Bjarna Fritzsonar. Í kjölfariđ var jafnt á öllum tölum upp í 21-21 en ţá sigu ÍR ingar framúr og náđu ţriggja marka forystu, 22-25 og 24-27 ţegar tćpar tólf mínútur voru til leiksloka.

Ţrándur Gíslason var ekki alveg hćttur afskiptum af leiknum ţó hann vćri kominn upp í stúku heldur reif hann upp stemminguna í húsinu međ kröftugum trommuleik svo um munađi.


Ţrándur fór á kostum og náđi magnađri stemmingu í stúkunni

Strákarnir tóku vel viđ sér og jöfnuđu leikinn í 29-29 og aftur í 30-30 ţegar sex mínútur voru eftir. Ţćr voru magnađar, flott vinnsla í vörninni og Jovan, sem hafđi ekki alveg fundiđ sig í seinni hálfleik hrökk heldur betur í gang og lokađi markinu. Ţađ voru svo Halldór Logi Árnason og Kristján Orri Jóhannsson sem kláruđu leikinn međ sitt hvoru markinu ţannig hreint magnađur sigur 32-30 skilađi sér í hús og tvö langţráđ stig.

Allt liđiđ á hrós skiliđ fyrir mikla baráttu og ţađ leyndi sér ekki ađ menn höfđu gaman ađ hlutunum og međ ţví fylgdi stemming sem skilađi sér svo sannarlega. Andri Snćr fór á kostum í vinstra horninu međ fimm mörk úr fimm skotum auk ţess ađ leggja upp tvö sirkusmörk. Gunnar Ţórsson kom í horniđ undir lokin og bćtti viđ tveim góđum mörkum. Valţór Guđrúnarson var árćđinn í skyttunni og var valinn mađur leiksins hjá Akureyri. Kristján Orri var ađ vanda međ fínan leik í hćgra horninu auk ţess sem hann klippti Björgin Hólmgeirsson nánast út úr sóknarleik ÍR inga. Bjarni Fritzson var öflugur í seinni hálfleiknum eftir ađ hafa ekki látiđ fara mikiđ fyrir sér í ţeim fyrri.
Vörnin var lengst af mjög góđ og greinilegt ađ innkoma ţeirra Heimis og Hreins skilar miklu öryggi í liđiđ.


Heimir og Hreinn létu ekki sitt eftir liggja í varnarleiknum

Mörk Akureyrar: Valţór Guđrúnarson 6 (2 úr vítum), Andri Snćr Stefánsson 5, Bjarni Fritzson 5 (2 úr vítum), Kristján Orri Jóhannsson 5, Ţrándur Gíslason 4, Halldór Logi Árnason 3, Gunnar Ţórsson 2, Heimir Örn Árnason og Sigţór Árni Heimisson 1 mark hvor.
Í markinu átti Jovan Kukobat frábćran fyrri hálfleik og tók síđan magnađan kipp á lokamínútunum međ samtals 16 varin skot, ţar af eitt vítakast. Tomas Olason kom í markiđ um tíma í seinni hálfleik en náđi ekki ađ verja.

Hjá ÍR voru Arnar Birkir Hálfdánson og Guđni Már Kristinsson markahćstir međ 7 mörk hvor. Sturla Ásgeirsson 5, Jón Heiđar Gunnarsson 4, Björgvin Ţór Hólmgeirsson og Sigurjón Björnsson 3 mörk hvor og Kristinn Björgúlfsson 1 mark.
Í markinu varđi Arnór Freyr 7 skot og Kristófer 5 skot.


Valţór tekur viđ matarkörfu sem leikmađur Akureyrar í kvöld

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson