Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Friðrik verður vonandi kominn heim frá Eyjum í laugardagsleikinn

29. nóvember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Tveir hörkuleikir um helgina - frestun

Þó að meistaraflokkur Akureyrar sé að spila í Vestmannaeyjum á laugardaginn þýðir það ekki að við fáum ekki leiki um helgina. Strákarnir í 2. flokki spila tvo leiki við Stjörnuna, fyrst í deildarkeppninni og síðan í bikarkeppninni.
Báðir leikirnir verða í Íþróttahöllinni, deildarleikurinn er klukkan 18:00 á laugardaginn en bikarleikurinn klukkan 10:30 á sunnudaginn.

Við hvetjum alla til að fjölmenna á leikina og styðja strákana í baráttunni og ekki spillir að boðið veður upp á kaffi og heimalagað bakkelsi.
Bæði lið hafa 4 stig í deildinni eftir sex leiki. Akureyri tapaði útileik gegn Stjörnunni þann 20. október og nú er kominn tími á að svara fyrir þann leik.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson