Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Akureyri og HK kljást aftur á sunnudaginn

6. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Handboltahelgin mikla á Akureyri

Leikur Akureyrar og HK í gćrkvöldi var ágćtis forsmekkur ađ helginni sem segja má ađ handboltinn ráđi ríkjum. Alls verđa fjórir leikir í karlaboltanum um helgina ţar sem 2. flokkur Akureyrar spilar tvo leiki gegn Haukum, Hamrarnir taka á móti vesturbćjarstórveldinu KR í 1. deildinni og rúsínan í pylsuendanum verđur svo bikarslagur Akureyrar og HK í 16-liđa úrslitunum.

Dagskráin er svohljóđandi:
Laugard. 7. des. klukkan 14:00 – 2. flokkur Akureyri – Haukar í Íţróttahöllinni
Laugard. 7. des. klukkan 18:00 – Hamrarnir – KR í KA heimilinu (1. deild karla)
Sunnud. 8. des. klukkan 10:30 – 2. flokkur Akureyri – Haukar í Íţróttahöllinni
Sunnud. 8. des. klukkan 16:00 – Akureyri HK í Íţróttahöllinni (bikarkeppnin)

2. flokkur:
Strákarnir í 2. flokki fá verđuga andstćđinga sem eru Haukarnir. Haukar sitja sem stendur í 4. sćti deildarinnar en Akureyri í 6. sćti en bćđi liđ hafa leikiđ sex leiki. Ţetta er önnur heimaleikjatörn Akureyrarliđsins en fyrir hálfum mánuđi tóku ţeir á móti Selfyssingum ţar sem fyrri leiknum lauk međ jafntefli en ţeim seinni međ góđum sigri Akureyrar. Strákarnir ćtla sér öll stigin í ţessum leikjum og vonast eftir dyggum stuđningi áhorfenda. Frítt er á leikina.

Hamrarnir
Stórleikur verđur í 1. deild karla á laugardaginn klukkan 18.00 ţegar ađ Hamrarnir taka á móti stórveldinu úr Vesturbćnum, KR. Ţađ hefur ekki vantađ stemminguna á leikjum Hamranna og nú ćtla ţeir ađ taka ţetta skrefinu lengra og bjóđa upp á ýmsar veitingar fyrir leik og í hálfleik. Grillađar pylsur og Hleđslu fyrir leik og Jóla kaffi í hálfleik auk ţess áhorfendur geta unniđ mánađarbirgđir af Hleđslu-íţróttadrykk.
Leikur Hamranna og KR verđur í KA heimilinu og ţađ er frítt inn.

Coca-Cola bikar karla
Síđasti leikur helgarinnar er síđan af stćrri gerđinni en ţađ ţá mćtast Akureyri og HK í 16-liđa úrslitum bikarkeppninnar og jafnframt síđasti leikur Akureyrar á árinu. Í bikarkeppninni gildir ekkert nema sigur ţví tapliđiđ er einfaldlega úr leik.
Ţó ađ Akureyri hafi unniđ góđan sigur á HK á fimmtudagskvöldiđ ţá er öruggt mál ađ ţau úrslit gilda ekkert í sunnudagsleiknum.

Ţađ er gömul ţjóđsaga ađ ţegar liđ mćtast svona í deild og bikar međ örfárra daga millibili ţá nái tapliđiđ í fyrri leiknum ađ hefna fyrir í ţeim seinni. Ţađ verđur ţví verđugt verkefni fyrir Akureyringa, innan vallar sem og í stúkunni ađ afsanna ţessu ţjóđtrú og berjast til sigurs ţví viđ ćtlum okkur svo sannarlega stóra hluti í bikarkeppninni.
Athugiđ ađ sérstakar reglur gilda um bikarleiki og ţví gilda ekki hefđbundnir ársmiđar eđa stuđningsmannaskírteini heldur verđa allir ađ greiđa ađgangseyrinn.

Ţađ er sem sé af nógu ađ taka um helgina og hvetjum viđ alla stuđningsmenn til ađ taka virkan ţátt í leikjunum.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson