 Fjölskylduskemmtun í Höllinni
| | 18. desember 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarTaktu frá sunnudaginn 29. desember

Það verður líf og fjör á stórbingói Akureyrar Handboltafélags í Íþróttahöllinni á síðasta sunnudegi ársins. Spilaðar verða margar umferðir enda búið að safna fjölmörgum veglegum vinningum þannig að það er til mikils að vinna.
Bingóið er liður í fjáröflun fyrir félagið, ekki síst til að standa undir keppnisferðum fyrir lið 2. flokks en enginn aðgangseyrir hefur verið innheimtur á heimaleikjum þeirra undanfarin ár.
Bingóið hefst klukkan 14:00 sunnudaginn 29. desember og að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Þátttakendum verður boðið upp á kaffi og nýbakaðar vöfflur auk þess sem sjoppa verður opin.
Sem dæmi um vinninga má nefna:- Glæsilegur snjallsími
- Flugferð fyrir tvo til og frá Grímsey
- Hótelgisting fyrir tvo á Reykjavík Lights (eitt af KEA hótelunum)
- Eldvarnarpakki frá Eldvarnarmiðstöðinni (slökkvitæki, eldvarnarteppi og reykskynjarar)
- Glæsilegur flugeldapakki fyrir fjölskylduna
- Gjafabréf frá ýmsum veitingahúsum bæjarins
- ... ásamt fjölmörgum fleiri vinningumr.
Bingóspjald kostar 1.000 krónur en hægt er að gera kjarakaup með því að kaupa þrjú spjöld á 2.000 krónur.
Nú er bara að merkja við daginn og taka þátt í hressilegri fjölskylduskemmtun í Höllinni! |