Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Spurning hvenær verður dregið í bikarnum

19. janúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ljóst hvaða lið verða í 8 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins

Nú er orðið ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitum Coca-Colabikarsins. Um helgina fór loks fram síðasti leikur 16-liða úrslitanna þar sem ÍBV og Haukar 2 áttust við og vann ÍBV öruggan sigur 21-35. Þar með varð endanlega ljóst hvaða lið verða í pottinum en það eru: Akureyri, Afturelding, FH, Haukar, ÍBV, ÍR, Selfoss og Valur.

Samkvæmt áætlun HSÍ eiga leikirnir í 8-liða úrslitunum að fara fram sunnudaginn 9. febrúar þannig að fljótlega ætti að koma í ljós hvaða lið dragast saman.

Annars styttist í að boltinn hér innanlands fari að rúlla af stað aftur. Olís deildin hefst laugardaginn 25. janúar með frestuðum leik ÍBV og Akureyrar í Eyjum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson