 Ţrándur var sterkur á línunni
| | 31. janúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarValsmenn fóru međ stigin úr HöllinniŢađ er óhćtt ađ segja ađ ţađ hafi skipst á skin og skúrir í leik Akureyrar og Vals í gćrkvöldi. Akureyrarliđiđ byrjađi leikinn frábćrlega og áttu Valsmenn litla möguleika gegn heimamönnum. Eftir tuttugu mínútna leik var stađan 10-4 fyrir Akureyri og Ólafur Stefánsson tók sitt annađ leikhlé. Ţađ greinilega virkađi ţví Akureyri skorađi ekki mark ţađ sem eftir var hálfleiks en Valsmenn fjögur ţannig ađ hálfleiksstađan var 10-8 Akureyri í vil. Ţrándur Gíslason í kröppum dansi á línunni Bergvin Ţór Gíslason kom inn í Akureyrarliđiđ í fyrsta sinn á tímabilinu og átti skínandi leik. Ţađ var ţví mikiđ áfall strax á ţriđju mínútu seinni hálfleiks ađ Bergvin meiddist aftur á öxl og varđ ađ yfirgefa völlinn, greinilega sárkvalinn.
Seinni hálfleikurinn varđ ađ martröđ heimamanna, Valsmenn breyttu stöđunni fljótlega í 11-13 en leikurinn ţó í járnum ţar til í stöđunni 14-15 en ţá hreinlega völtuđu Valsmenn yfir heimamenn. Ekkert gekk í sóknarleiknum, Valsmenn fengu hvert hrađaupphlaupiđ á fćtur öđru og unnu seinni hálfleikinn međ átján mörkum gegn einungis átta mörkum Akureyrar, lokatölur 18-26.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 6 (2 úr vítum), Ţrándur Gíslason 5, Gunnar Ţórsson 2, Andri Snćr Stefánsson, Bergvin Ţór Gíslason, Halldór Logi Árnason, Sigţór Heimisson og Valţór Guđrúnarson međ 1 mark hver. Í markinu varđi Jovan Kukobat 9 skot og Tomas Olason 6 en báđir vörđu sitt hvort vítakastiđ.
Hjá Val var Sveinn Aron Sveinsson markahćstur međ 10 mörk, Guđmundur Hólmar Helgason 6, Geir Guđmundsson 3, Elvar Friđriksson 2, Alexander Örn Júlíusson, Orri Freyr Gíslason, Vignir Stefánsson, Ćgir Hrafn Jónsson og Bjartur Guđmundsson 1 mark hver. Hlynur Morthens markvörđur Vals átti enn einn stórleikinn í Íţróttahöllinni og öđrum fremur skóp sigur Valsmanna, hann varđi 19 skot, ţar af 2 vítaköst.
Hlynur var valinn besti leikmađur Vals en Ţrándur Gíslason í liđi heimamanna. Hlynur Morthens er ekki óvanur ađ fara heim međ leikmannaverđlaun Valsmanna í Höllinni
|