 Til hamingju Bjarni
| | 18. febrúar 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSport.is og handbolti.org með Bjarna í liði 14. umferðarEins og við greindum frá um daginn þá valdi Morgunblaðið Bjarna Fritzson leikmann 14. umferðar Olís-deildar karla og jafnframt Halldór Loga Árnason varnarmann umferðarinnar. Nú hafa sport.is og handbolti.org sömuleiðis birt sitt val á úrvalsliði umferðarinnar og velja báðir aðilar Bjarna í liðið, þó ekki í sömu stöðu. Hvorugur miðillinn velur varnarmann umferðarinnar þannig að Halldór Logi fær ekki titilinnþar.
En lið sport.is er þannig skipað: Markvörður: Einar Ólafur Vilmundarsson Haukar Vinstra horn: Sturla Ásgeirsson ÍR Hægra horn: Ólafur Magnússon Fram Línumaður: Máni Gestsson ÍR Miðja: Þorgrímur Smári Ólafsson Valur Hægri skytta: Bjarni Fritzson Akureyri Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson ÍR
Úrvalslið handbolti.org er hins vegar þannig skipað (innan sviga hversu oft viðkomandi hefur verið valinn): Markvörður: Einar Ólafur Vilmundarson, Haukar (1) Línumaður: Jón Þorbjörn Jóhannesson, Haukar (1) Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson , ÍR (7) Vinstri skytta:Björgvin Þór Hólmgeirsson, ÍR (4) Miðjumaður: Bjarni Fritzson, Akureyri (1) Hægri skytta: Geir Guðmundsson, Val (3) Hægri hornamaður: Sveinn Aron Sveinsson , Val (5) |