Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Jovan, Bjarni og Þrándur





10. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jovan, Bjarni og Þrándur í liði umferðarinnar hjá Mbl

Morgunblaðið hefur valið leikmenn 16. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram á fimmtudaginn. Framganga Akureyrarliðsins gegn ÍR fór ekki fram hjá Morgunblaðsmönnum því þrír leikmanna liðsins eru valdir í úrvalsliðið. Jovan Kukobat er besti markvörðurinn, Bjarni Fritzson í hægra horninu og Þrándur Gíslason besti varnarmaðurinn.

Úrvalsliðið er þannig skipað að áliti Morgunblaðsmanna (tölurnar innan sviga segja til um hve oft viðkomandi hefur verið valinn í lið umferðarinnar.
Vinstri hornamaður: Elías Már Halldórsson, Haukum (4)
Vinstri skytta: Adam Haukur Baumruk, Haukum (2)
Leikstjórnandi: Róbert Aron Hostert, ÍBV (7)
Hægri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Val (4)
Hægri hornamaður: Bjarni Fritzson, Akureyri (2)
Markvörður, Jovan Kukobat, Akureyri (2)
Varnarmaður: Þrándur Gíslason, Akureyri

Við óskum öllum þessum leikmönnum til hamingju með viðurkenninguna en þess má einnig geta að samkvæmt samantekt Mbl þá hefur Jovan Kukobat varið flest skot allra markvarða í deildinni og Bjarni Fritzson er í öðru sæti yfir markahæstu menn deildarinnar.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson