Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Tomas kom sterkur inná í seinni hálfleik

13. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lélegur fyrri hálfleikur varđ Akureyri ađ falli

Ţađ hefur gengiđ erfiđlega fyrir Akureyrarliđiđ ađ spila heilan leik af fullum krafti. Á ţví varđ engin undantekning í kvöld ţví eftir ágćtis byrjun fyrstu fimm mínúturnar var liđiđ yfir, 2-3 en ţá hrökk allt í baklás og Fram skorađi nćstu fimm mörk leiksins. Framarar léku viđ hvern sinn fingur og juku forskotiđ jafnt og ţétt, mestur varđ munurinn níu mörk en Bjarni Fritzson minnkađi muninn í átta mörk međ síđasta marki hálfleiksins, hálfleikstölur 18-10 Fram í vil.


Bjarni dró vagninn í fyrri hálfleiknum. Mynd: Vísir/Stefán

Ţađ verđur ađ segjast ađ leikur Akureyrarliđsins var arfaslakur, jafnt í sókn sem vörn. Menn réđu t.d. ekkert viđ Elías Bóasson sem skorađi sjö mörk í fyrri hálfleik.

Ţađ var ţví ljóst ađ eitthvađ ţurfti ađ breytast í seinni hálfleik og ţađ gerđist. Í vörninni voru tveir sóknarmenn Framara klipptir út og riđlađist sóknarleikur Fram algjörlega viđ ţađ. Smátt og smátt saxađist á forskot Framara. Um miđjan hálfleikinn var munurinn kominn í fjögur mörk og seinna niđur í ţrjú mörk 23-20 en nćr komust menn ekki.

Vissulega lá mönnum á en í asanum voru gerđ ótal mistök í sóknarleiknum sem komu í veg fyrir ađ tćkist ađ jafna leikinn sem endađi međ fjögurra marka sigri Fram, 25-21.

Međ ţessum úrslitum eru möguleikarnir á ađ komast í úrslitakeppnina nánast vonlausir, ţó ekki međ öllu útilokađ.

Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 8 (2 úr vítum), Ţrándur Gíslason 6, Sigţór Árni Heimisson 3, Andri Snćr Stefánsson 2 og Kristján Orri Jóhannsson 2 mörk.
Jovan Kukobat stóđ í markinu í fyrri hálfleik og varđi 9 bolta. Tomas Olason lék seinni hálfleikinn og var góđur, međ 10 skot varin.

Mörk Fram: Elías Bóasson 7, Garđar B. Sigurjónsson 6(3 úr vítum), Stefán Baldvin Stefánsson 4, Ólafur Jóhann Magnússon 3, Ţorri Björn Gunnarsson 2(1 úr víti), Sigurđur Örn Ţorsteinsson, Sigfús Páll Sigfússon og Sveinn Ţorgeirsson 1 mark hver.
Í marki Fram varđi Stephen Nielsen 12 skot og Svavar Már Ólafsson varđi eitt vítakast.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson