 Það má búast við fjörugum leik gegn FH ingum
| | 25. mars 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri fer í Kaplakrika á fimmtudaginn

Akureyri mætir í Hafnarfjörðinn og leikur gegn FH á fimmtudaginn. Rimma þessara liða hefur verið hrikalega hörð síðustu ár og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessi leikur fer. Síðustu tveir leikir liðanna voru hér í Íþróttahöllinni með nokkurra daga millibili. Fyrst í bikarnum en sá leikur fór í framlengingu þar sem FH knúði fram sigur.
Þrem dögum síðar mættust liðin í Olís-deildinni og þar var það Akureyri sem skoraði sigurmarkið þegar sjö sekúndur voru til leiksloka.
Bæði lið hafa fulla þörf fyrir stigin sem eru í boði í Krikanum og þarf ekki að efast um að þar verður allt lagt í sölurnar. Það er því ástæða fyrir alla stuðningsmenn að fjölmenna í Kaplakrikann og styðja okkar lið!
Eins og gefur að skila þá þekkja liðin vel inn á hvort annað, þær breytingar hafa þó orðið á FH liðinu frá því að þeir komu hér í Höllina að Kristján Arason er aftur kominn inn í þjálfarahópinn. Það virtist gefast vel í síðustu umferð þegar FH-ingar unnu langþráðan sigur í Fram heimilinu 25-28. Í þeim leik var hægri skyttan Ragnar Jóhannsson atkvæðamestur með 7 mörk og hornamaðurinn Benedikt Reynir og Magnús Óli með fimm mörk hvor. Magnús Óli Magnússon hefur verið einn albesti maður liðsins í vetur og þeirra markahæstur með 81 mark í deildinni. Ásbjörn Friðriksson er líka alltaf erfiður viðureignar en hann er með 75 mörk og hornamaðurinn Einar Rafn Eiðsson með 72 mörk.
Akureyrarliðið hefur verið á góðu róli undanfarið á heimavelli en átt erfitt uppdráttar á útivöllum, nú fer hver að verða síðastur að snúa því við þar sem einungis eru tveir útileikir eftir í deildinni, næsti slíkur verður einnig í Hafnarfirði gegn Haukum. |