 Það eru bara tvær umferðir eftir af deildinni
| | 6. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSpennandi lokaumferðir í Olís-deildinni

Akureyri mætir aftur í Hafnarfjörðinn á fimmtudaginn og mætir þá Haukum í næstsíðustu umferð Olís-deildarinnar. Það er gríðarlega mikið undir hjá báðum liðum en Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn á meðan Akureyri er í hörku baráttu um að sleppa við umspilið.
Staða liðanna í deildinni getur ennþá breyst á ýmsan hátt, það sem er þó ljóst á þessari stundu er að Haukar og ÍBV verða í tveim efstu sætunum, þó að Haukar standi betur að vígi þá á ÍBV ennþá möguleika á að ná deildarmeistaratitlinum. Valur er sömuleiðis öruggur um sæti í úrslitakeppninni en Fram og FH berjast um síðasta lausa sætið.
Þá er ljóst að HK verður í neðsta sætinu og þar með fallið úr deildinni miðað við núverandi skipulag. Akureyri, FH og ÍR eru síðan í baráttu um að forðast næstneðsta sætið eða umspilssætið en öll þessi lið gætu hafnað í því.
Staðan í deildinni er þannig núna:
| Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | - | | 1. | Haukar | 19 | 15 | 1 | 3 | 507 : 426 | 81 | 31 | : | 7 | | 2. | ÍBV | 19 | 14 | 0 | 5 | 526 : 480 | 46 | 28 | : | 10 | | 3. | Valur | 19 | 10 | 2 | 7 | 529 : 456 | 73 | 22 | : | 16 | | 4. | Fram | 19 | 10 | 0 | 9 | 430 : 449 | -19 | 20 | : | 18 | | 5. | FH | 19 | 8 | 1 | 10 | 483 : 473 | 10 | 17 | : | 21 | | 6. | ÍR | 19 | 8 | 0 | 11 | 507 : 518 | -11 | 16 | : | 22 | | 7. | Akureyri | 19 | 7 | 1 | 11 | 454 : 490 | -36 | 15 | : | 23 | | 8. | HK | 19 | 1 | 1 | 17 | 423 : 567 | -144 | 3 | : | 35 | Það er því margt og mikið undir í þessum tveim síðustu umferðum deildarinnar. Enda gilda þær reglur að alla leiki hvorrar umferðar skuli leika samtímis. Næstsíðasta umferðin fer fram fimmtudaginn 10. apríl klukkan 19:30 og þá eigast við: ÍBV – Valur, Fram – ÍR, FH – HK og Haukar – Akureyri. Lokaumferðin er svo mánudaginn 14. apríl klukkan 19:30, leikirnir þá eru: Haukar – ÍBV, Valur – Fram, ÍR – FH og Akureyri - HK
Eini möguleiki ÍBV á að ná deildarmeistaratitlinum er að Akureyri vinni Hauka á fimmtudaginn og síðan þarf ÍBV að vinna bæði Val á fimmtudaginn og einnig Hauka í seinustu umferðinni. Fram stendur betur að vígi en FH um sæti í úrslitakeppninni en þarf tvö stig úr leikjunum gegn ÍR og Val til að vera öruggt með sætið. Fái Fram eitt stig eða ekkert getur FH, sem er núna þrem stigum á eftir þeim komist uppfyrir Fram eða jafnað þá að stigum og þar sem FH stendur betur í innbyrðis viðureignum liðanna færi FH áfram á kostnað Fram. Það er því ljóst að Fram hlýtur að leggja alla áherslu á að vinna ÍR á fimmtudaginn til að tryggja sætið.
Barátta Akureyrar, ÍR og FH um að forðast umspilssætið er býsna flókin og getur tekið á sig ýmsar myndir. Fái Akureyri fleiri stig en ÍR í þessum tveim lokaumferðum þá sleppur Akureyri og sömuleiðis ef Akureyri fær tveim stigum fleiri en FH þá sleppur Akureyri líka. Það má því búast við að leikur ÍR og FH í lokaumferðinni verði æsilegur.
En Akureyri á sem sé eftir tvo leiki, Hauka á útivelli á fimmtudaginn og síðan HK hér á Akureyri mánudaginn 14. apríl, að sjálfsögðu munu strákarnir berjast fyrir öllum stigunum í báðum þessum leikjum og gulltryggja þar með að lenda ekki í umspilinu. |