 Jovan Kukobat hefur verið öflugur í vetur
| | 12. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarJovan Kukobat í úrvalsliði 20. umferðarMorgunblaðið hefur valið leikmenn 20. umferðar Olís-deildar karla sem fór fram á fimmtudaginn. Frábær frammistaða Jovan Kukobat í leiknum gegn Haukum fór ekki framhjá neinum og er hann verðskuldað valinn markvörður umferðarinnar.
Úrvalsliðið er þannig skipað að áliti Morgunblaðsmanna (tölurnar innan sviga segja til um hve oft viðkomandi hefur verið valinn í lið umferðarinnar. Vinstri hornamaður: Benedikt Reynir Kristinsson, FH (2) Vinstri skytta: Róbert Aron Hostert, ÍBV (8) Leikstjórnandi: Guðni Már Kristinsson, ÍR (3) Hægri skytta: Ásbjörn Friðriksson, FH (2) Línumaður: Grétar Þór Eyþórsson, ÍBV (4) Hægri hornamaður: Elías Már Halldórsson, Haukum (6) Markvörður: Jovan Kukobat, Akureyri (3) Varnarmaður: Ingimundur Ingimundarson, ÍR
Jafnframt útnefndi Morgunblaðið Ingimund leikmann umferðarinnar.
Við óskum Jovan og öllum þessum leikmönnum til hamingju með viðurkenninguna en þess má einnig geta að samkvæmt samantekt Mbl þá er Jovan Kukobat sá markvarða sem hefur varið flest skot allra í deildinni eða 272 skot samkvæmt þeirra talningu og Bjarni Fritzson er í öðru sæti yfir markahæstu menn deildarinnar með 120 mörk.

|