Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Flottur Jovan

19. apríl 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jovan Kukobat markvörður Olísdeildarinnar

Nú þegar Olís-deildarkeppninni er lokið hefur Morgunblaðið stillt upp úrvalsliði deildarinnar. Morgunblaðið hefur valið úrvalslið hverrar umferðar og væntanlega hafa blaðamennirnir haft þær útnefningar til hliðsjónar þegar þeir settu saman þetta lokayfirlit.

Markvörðurinn snjalli Jovan Kukobat er fulltrúi Akureyrar í liðinu en Jovan hefur verið flottur í vetur og varði fleiri skot en nokkur annar markvörður í deildinni og er því vel að viðurkenningunni kominn.

Úrvalslið Olísdeildarinnar 2013-2014 er þannig skipað að áliti Morgunblaðsins:
Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson, ÍR
Vinstri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Val
Leikstjórnandi: Róbert Aron Hostert, ÍBV
Hægri skytta: Árni Steinn Steinþórsson, Haukum
Línumaður: Garðar B. Sigurjónsson, Fram
Hægri hornamaður: Elías Már Halldórsson, Haukum
Markvörður: Jovan Kukobat, Akureyri
Varnarmaður: Ísak Rafnsson, FH

Jafnframt útnefndi Morgunblaðið Árna Stein Steinþórsson leikmann Olís-deildarinnar.

Við óskum Jovan til hamingju með útnefninguna og að sjálfsögðu öllum ofantöldum leikmönnum til hamingju.


Jovan var oftar en ekki valinn maður Akureyrarliðsins í vetur

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson