Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Akureyringar eru vel ţekktir hjá Aue

21. maí 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sendinefnd Akureyringa hjá EHV Aue í Ţýskalandi

Eins og kunnugt er ţá eru veruleg tengsl leikmanna Akureyrar Handboltafélags viđ ţýska 2. deildarliđiđ EHV Aue. Ţjálfari liđsins er Rúnar Sigtryggsson, fyrrum ţjálfari Akureyrarliđsins en einnig leika međ liđinu markvörđurinn Sveinbjörn Pétursson og skyttan Árni Sigtryggsson sem báđir léku međ Akureyri. Ţar til viđbótar leikur međ liđinu sonur Rúnars, Sigtryggur Rúnarsson og raunar einn Íslendingur til viđbótar, landsliđsmađurinn Bjarki Már Gunnarsson úr HK.

Um síđustu helgi lék Aue síđasta heimaleik sinn á tímabilinu og af ţví tilefni tóku fjórir félagar sig til og heimsóttu liđiđ. Ţetta voru Andri Snćr Stefánsson og Jón Heiđar Sigurđsson leikmenn Akureyrar Handboltafélags, Stefán Árnason sem var einmitt ađstođarmađur Rúnars eitt tímabil viđ ţjálfun Akureyrar, auk ţess sem Bjarni Jónasson slóst í hópinn frá Englandi en Bjarni er fyrrum leikmađur Akureyrar.

Skemmst er frá ţví ađ segja ađ Aue vann eins marks sigur á nágrönnum sínum í Leipzig, 25-24.

Íslensku gestirnir vöktu athygli fyrir vasklega framgöngu í stúkunni og kröftugan stuđning viđ Aue liđiđ. Sjónvarpsstöđin MITTELDEUTSCHER RUNDFUNK sýndi samantekt frá leiknum og sáu ástćđu til ađ beina linsunni ađ ţessum vösku fjórmenningum í stúkunni.


Kátir félagar í stúkunni

Hćgt er ađ sjá sjónvarpsútsendinguna međ ţví ađ smella hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson