Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Kristján Orri stendur vaktina í hægra horninu

25. ágúst 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri leikur á Hafnarfjarðarmótinu um helgina

Nú er heldur betur að færast fjör í undirbúning handboltaliðanna fyrir komandi tímabil. Framundan eru fjölmörg æfingamót en eitt það öflugasta verður í Íþróttahúsinu í Strandgötu í Hafnarfirði um næstu helgi. Þar taka þátt fjögur lið, Akureyri Handboltafélag, ÍBV, Haukar og FH.

Leikjaplanið er sem hér segir:
Fimmtudagur 28. ágúst
Klukkan 18.00 FH - ÍBV
Klukkan 20.00 Haukar - Akureyri

Föstudagur 29. ágúst
Klukkan 18.00 Haukar - ÍBV
Klukkan 20.00 FH - Akureyri

Laugardagur 30. ágúst
Klukkan 14.00 Akureyri - ÍBV
Klukkan 16.00 Haukar - FH

Við vitum að það er mikill áhugi hjá stuðningsmönnum á suðvesturhorninu að sjá hvernig liðið fer af stað og um að gera að kíkja í Strandgötuna og heilsa upp á strákana.


Ingimundur, Sverre og Heimir Örn mæta í Hafnarfjörðinn um helgina

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson