Í dag var síðasti dagur Hafnarfjarðarmótsins og hófst hann með leik Akureyrar og Íslandsmeistara ÍBV. Akureyrarliðið byrjaði illa í leiknum og virtust Vestmannaeyingar ætla að valta yfir okkar menn, náðu mest tíu marka forskoti.
Í hálfleik var staðan 9-18 fyrir ÍBV. En Akureyringar gáfust ekki upp og unnu sig inn í leikinn á ný. Svo fór að lokum að Heiðar Þór Aðalsteinsson skoraði sigurmark Akureyrar á lokasekúndum leiksins sem lauk með eins marks sigri Akureyrar 28-27.
Heiðar og félagar fagna sigurmarkinu
Sigþór Árni Heimisson var markahæstur með 7 mörk en Heiðar Þór Aðalsteinsson og Jón Heiðar Sigurðsson skoruðu 5 mörk hvor.
Haukar unnu FH síðan sannfærandi, 24-18 í lokaleiknum og unnu þar með Hafnarfjarðarmótið í ár.
Sverre með tök á Eyjamanninum Agnari Smára

Ingimundur í baráttu við Grétar Þór Eyþórsson

Brynjar Hólm Grétarsson kominn í gegnum Eyjavörnina. Myndir: frá fimmeinn.is