 Sverre spenntur fyrir vetrinum
| | 16. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSverre í viðtali um komandi tímabilSverre Andreas Björnsson, annar þjálfari Akureyrar var í viðtali við vefinn fimmeinn.is í dag í kjölfar þess að spá forráðamanna liðanna var birt í dag. Sverre kveðst alveg rólegur yfir spánni, 4. sæti ekkert óraunhæft ef hlutirnir ganga upp. Þetta byggist allt á að menn haldist heilir og séu skynsamir. Liðið sé engan veginn bara hann og Ingimundur eins og oft virðist í umræðunni heldur hafi hann fulla trú á mannskapnum sem hann hefur.
Hægt er a horfa á viðtalið hér að neðan, það er Lúther Gestsson tíðindamaður fimmeinn.is sem ræðir við Sverre.
|