 Erfiður útileikur framundan
| | 21. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÚtileikur gegn Haukum í dag, sunnudagÞað er stutt á milli fyrstu leikja í Olís-deildinni og Akureyrarliðið heldur í Hafnarfjörðinn í dag til móts við meistaralið Hauka. Sem kunnugt er þá urðu Haukar bæði deildar- og bikarmeistarar í fyrra.
Patrekur Jóhannesson þjálfar Hauka líkt og áður, en nokkrar breytingar hafa orðið á liðinu frá því í fyrra. Patrekur á hliðarlínunni gegn Fram á fimmtudaginn Elías Már Halldórsson er sem kunnugt er kominn til liðs við Akureyri, skyttan Sigurbergur Sveinsson farinn til Þýskalands og hornamaðurinn Þórður Rafn Guðmundsson til Noregs. Nokkrir hafa að sjálfsögðu komið til liðsins, t.d. línumaðurinn Heimir Óli Heimisson sem sneri heim frá Svíþjóð.
Haukarnir fengu extra undirbúningsleiki fyrir tímabilið þegar þeir léku tvo hörkuleiki gegn rússneska liðinu Dinamo Astrakhan og voru virkilega óheppnir að falla úr EHF keppninni.
Líkt og Akureyri hófu Haukar leik í Olís-deildinni á fimmtudaginn þar sem þeir töpuðu 21-22 fyrir Fram í miklum baráttuleik. Í þeim leik var landsliðsmaðurinn Árni Steinn Steinþórsson langmarkahæstur með 9 mörk og ljóst að Akureyrarvörnin þarf að stöðva hann. Hinn stórgóði Adam Haukur Baumruk kom næstur með 3 mörk og aðrir minna. Árni Steinn í leiknum gegn Fram á fimmtudaginn. Myndir fimmeinn.is Þetta verður pottþétt hörkuleikur og ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn á suðvesturhorninu til að fjölmenna á leikinn sem hefst klukkan 15:00 í Schenkerhöllinni.
Eins og menn muna þá fékk skyttan unga, Brynjar Hólm Grétarsson beint rautt spjald í leik Akureyrar gegn HK á fimmtudaginn og trúlega á leið í leikbann. Aganefnd HSÍ fundar reyndar ekki fyrr en á þriðjudaginn þannig að Brynjar er ekki í banni í leiknum á morgun.
Við gerum ráð fyrir að verða með beina textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni. |