Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Sissi

24. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fimmeinn.is velur Sigþór Heimisson í úrvalslið 2. umferðar

Handboltavefurinn fimmeinn.is hefur valið úrvalslið 2. umferðar Olís-deildar karla. Sigþór Árni Heimisson sem átti stórgóðan leik gegn Haukum á sunnudaginn er valinn besti miðjumaður umferðarinnar og er Sissi vel að því vali kominn.

Annars er lið 2. umferðarinnar þannig skipað að áliti tíðindamanna fimmeinn.is:
Markvörður: Davíð Svansson Aftureldingu.
Vinstri hornamaður: Benedikt Reynir Kristinsson FH.
Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson ÍR.
Miðjumaður: Sigþór Árni Heimisson Akureyri.
Línumaður: Garðar B. Sigurjónsson Fram.
Hægri hornamaður: Bjarni Fritzson ÍR.
Hægri skytta: Árni Steinn Steinþórsson Haukum.

Við óskum þeim öllum til hamingju með útnefninguna.


Sigþór Árni lék Haukavörnina grátt á sunnudaginn

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson