 Þjálfararnir þakka stuðningsmönnum frábæran stuðning
| | 26. september 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSkilaboð frá þjálfarateyminu eftir StjörnuleikinnStuðningsmenn Akureyrar mættu vel á leikinn gegn Stjörnunni og héldu uppi frábærum stuðningi við liðið. Sverre Jakobsson sendi meðfylgjandi kveðju frá þjálfarateyminu til stuðningsmanna á facebook síðu Akureyrarliðsins:
Kæru stuðningsmenn - fyrir hönd liðsins langar okkur að þakka ykkur fyrir þann flotta stuðning sem þið sýnduð okkur í gær. Vonandi sjáumst við sem oftast í vetur og sköpum hér góða stemmningu í kringum liðið og handboltann í bænum. Bestu kveðjur Sverre, Heimir og Sigurpáll. Sverre og Sigurpáll á hliðarlínunni í gær. Heimir átti ekki heimangengt að þessu sinni
 Stemmingin var flott í stúkunni í gær. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson Það verður fjör í Höllinni í næstu viku því á fimmtudaginn klukkan 18:00 er leikur gegn Val og þrem dögum seinna, sunnudaginn 5. október klukkan 15:00 mæta Íslandsmeistarar Vestmannaeyinga í Höllina. |