 Brynjar sneri aftur eftir meiđsli
| | 3. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarHáspenna og dramatík í tapi fyrir Val í kvöldEins og yfirleitt ţegar Akureyri og Valur mćtast ţá var bođiđ upp á hörkuspennandi leik ţar sem dramatíkin var allsráđandi. Leikurinn var mjög hrađur í upphafi, jafnt á öllum tölum upp í stöđuna 6-6 en ţá komu ţrjú Valsmörk í röđ.
Valur hafđi yfirhöndina nćstu mínúturnar og náđi mest fjögurra marka forskoti, 7-11 og 8-12 en ţá bitu heimamenn frá sér og minnkuđu muninn í eitt mark 11-12 og aftur í 13-14 en Valsmenn áttu síđasta mark fyrri hálfleiks. Ţađ mark var reyndar ákaflega klaufalegt, fyrst misheppnađist sending fram í hrađaupphlaup og Elvar Friđriksson skorađi frá miđjum vallarhelmingi Valsmanna en Tomas virtist renna til eđa vera óviđbúinn í markinu. Hálfleikstölur ţví 13-15 Valsmönnum í vil. Halldór Logi Árnason međ mark af línunni Valsmenn héldu ţessu forskoti fyrstu tíu mínútur seinni hálfleiks en ţá kom slćmur kafli hjá heimamönnum og Valur náđi fimm marka forskoti, 17-22 og 18-23 og útlitiđ ekki gott. En Akureyri lagđi ekki árar í bát og vann sig jafnt og ţétt inn í leikinn á ný. Ţegar níu mínútur voru til leiksloka jafnađi Halldór Logi Árnason leikinn í 25-25 og Ingimundur kom Akureyri yfir 27-26 ţegar fjórar og hálf mínúta var eftir. Ingimundur međ mark af línunni Akureyri fékk fín fćri til ađ gera út um leikinn í kjölfariđ en heilladísirnar voru ekki á ţeirra bandi og ţess í stađ skoruđu Valsmenn síđustu fjögur mörk leiksins og unnu ađ lokum 27-30.
Auđvitađ súrt ađ fá ekki stig úr leiknum en margt mjög jákvćtt hćgt ađ taka úr honum. Sigţór Árni Heimisson fór á kostum í sókninni og Heiđar Ţór drjúgur í vinstra horninu. Brynjar Hólm Grétarsson kom inn í liđiđ á ný eftir ađ hafa misst af tveim leikjum vegna meiđsla og stóđ sig vel.
Varnarleikurinn og markvarslan á köflum ekki alveg eins og best hefđi veriđ á kosiđ en ţó komu góđir sprettir. Valsmenn fengu ţó nokkur heppnismörk í leiknum á međan Akureyri misnotađi alltof mörg dauđafćri og ţví fór sem fór.
Mörk Akureyrar: Sigţór Árni Heimisson 8 mörk, Heiđar Ţór Ađalsteinsson 5 (2 úr vítum), Brynjar Hólm Grétarsson 4, Elías Már Halldórsson, Daníel Örn Einarsson, Halldór Logi Árnason og Ingimundur Ingimundarson 2 mörk hver og loks Kristján Orri Jóhannsson og Ţrándur Gíslason sitt markiđ hvor. Í markinu varđi Tomas 15 skot Bjarki Símonarson kom inná um tíma en án árangurs.
Mörk Vals: Geir Guđmundsson 8 mörk, Guđmundur Hólmar Helgason 6, Elvar Friđriksson 4, Vignir Stefánsson 3, Bjartur Guđmundsson, Finnur Stefánsson, Kári Krisjánsson og Ómar Ingi Magnússon 2 mörk hver og loks Orri Freyr Gíslason međ 1 mark. Hlynur Morthens stóđ í marki Vals allan tímann og varđi 13 bolta, marga ţeirra úr opnum fćrum. Geir Guđmundsson var valinn mađur Valsliđsins og Sigţór Árni Heimisson mađur Akureyrarliđsins og fengu báđir körfu frá Norđlenska ađ launum.
Ţađ er stutt í nćsta leik, á sunnudaginn koma Íslandsmeistarar ÍBV og hefst sá leikur klukkan 15:00. Áhorfendur stóđu fyrir sínu og koma grimmir til leiks á sunnudaginn
|