 Það hefur ýmislegt gengið á í leikjum liðanna
| | 5. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Heimaleikur gegn Íslandsmeisturum ÍBVÞað er stutt á milli leikja þessa dagana, Íslandsmeistarar ÍBV mæta norður í dag, sunnudag. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og við hvetjum alla til að mæta enda ætla strákarnir að koma sterkir til baka eftir síðasta leik. Í liði Eyjamanna er sem fyrr Magnús Stefánsson, kenndur við Fagraskóg og fyrrum leikmaður Akureyrar. Fyrrum liðsfélagarnir Andri Snær Stefánsson og Magnús Stefánsson kljást í leik fyrir ári síðan Leikir liðanna hafa oft verið sögulegir, þannig vann Akureyri sinn stærsta deildarsigur í sögu félagsins þegar liði mættust í Eyjum 15. mars 2008 en honum lauk með fimmtán marka sigri Akureyrar 28 – 43.
Vestmannaeyingar létu heldur betur finna fyrir sér hér í Höllinni fyrir nákvæmlega ári síðan og þá mátti Akureyri hins vegar sætta sig við sitt stærsta tap í deildinni, þrettán marka tap 22 - 35.
Liðin mættust síðast í Hafnarfjarðarmótinu í haust og þar sigraði Akureyri með einu marki. Það er ómögulegt að segja hvað gerist í dag, kíkjum í Höllina og styðjum strákana!Hamrarnir - ÍH klukkan 13:00 Á undan leik Akureyrar og ÍBV er annar áhugaverður leikur í Höllinni en klukkan 13:00 mætast Hamrarnir og ÍH í 1. deild karla. Þetta er fyrsti heimaleikur Hamranna á tímabilinu og má búast við að Heimir Örn Árnason leiki með liðinu og jafnvel Hreinn Þór Hauksson en þeir léku báðir með Hömrunum á Opna Norðlenska í haust þar sem Hamrarnir unnu Fram.
Þær fréttir hafa borist að hinn magnaði markvörður Hamranna, Stefán Guðnason hafi lagt skóna á hilluna og verði því ekki með. 
|