 Meistaraflokkur Akureyrar mćtir Fram á laugardaginn
| | 8. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarÖll karlaliđ Akureyrar leika á útivöllum um helgina Ţađ má međ sanni segja ađ handboltamenn á Akureyri verđi á faraldsfćti um helgina, liđin spila fimm leiki, alla á útivöllum. Meistaraflokkur Akureyrar mćtir Fram í Olís-deild karla, leikurinn er í Framhúsinu í Safamýri klukkan 15:00 á laugardaginn.
Fram byrjađi međ látum á heimavelli í fyrstu umferđ og vann sigur á Haukum 22-21 en hafa síđan tapađ fjórum leikjum í röđ. Fram tapađi á heimavelli fyrir FH 24-28, á útivelli gegn ÍR 26-22, á heimavelli gegn Aftureldingu 22-27 og í síđustu umferđ á útivelli gegn HK 31-22. Ţannig ađ ţađ má búast viđ ađ Guđlaugur Arnarsson, ţjálfari Fram leggi allt í sölurnar til ađ snúa ţessari ţróun viđ á laugardaginn. Ađ sjálfsögđu gildir ţađ sama um Akureyri sem örugglega ćtlar sér sigur eftir tap í síđustu tveim leikjum. Nánar um ţann leik síđar.
Strákarnir í 2. flokki Akureyrar spila tvo leiki, fyrst á föstudaginn klukkan 18:00 gegn Val í Vodafone höllinni og daginn eftir gegn FH/ÍH í Kaplakrika en sá leikur hefst klukkan 12:30 á laugardag. 2. flokkur Akureyrar á erfitt verkefni fyrir höndum en ţeirra leikir eru liđur í forkeppni um sćti í efri deildinni í vetur. Liđiđ er međ 2 stig eftir ţrjá leiki, Valur er međ 4 stig eftir tvo leiki og FH/ÍH međ 2 stig eftir tvo leiki, töpuđu fyrir Val 28-24.
Hamrarnir eiga útileik í 1. deild karla á föstudagskvöldiđ klukkan 19:30 en ţeir mćta Ţrótti í Laugardalshöllinni og mćta síđan ÍH á laugardaginn klukkan 16:30 í Kaplakrika. Hamrarnir unnu góđan sigur á ÍH hér á heimavelli í síđustu umferđ, 27-22 og eru međ 2 stig eftir ţrjá leiki. Ţróttur hefur náđ sér í eitt stig í ţrem leikum en ţeir gerđu jafntefli viđ Míluna á Selfossi 24-24 um síđustu helgi.
Leikir Akureyrarliđanna um helgina eru ţannig í tímaröđ: Föstudaginn 10. október klukkan 18:00 í Vodafone höllinni Valur - Akureyri, 2. flokkur karla Föstudaginn 10. október klukkan 19:30 í Laugardalshöll Ţróttur – Hamrarnir, 1. deild karla Laugardaginn 11. október klukkan 12:30 í Kaplakrika FH/ÍH - Akureyri H, 2. flokkur karla Laugardaginn 11. október klukkan 15:00 í Framhúsinu Fram – Akureyri, Olís-deild karla. Laugardaginn 11. október klukkan 16:30 í Kaplakrika ÍH – Hamrarnir, 1. deild karla.
Eins og kunnugt er ţá leika margir strákar úr 2. flokki einnig međ Hömrunum ţannig ađ ţađ er ljóst ađ föstudagskvöldiđ verđur erfitt ţar sem enginn tími er í raun á milli leikjanna, ţađ verđur forvitnilegt ađ sjá hvernig ţjálfarar liđanna leysa úr ţeim vanda. |