 Fyrirliðinn orðinn leikjahæstur


| | 11. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarAndri Snær orðinn leikjahæstur í sögu AkureyrarMeð sigurleiknum í dag Fram varð fyrirliði okkar, Andri Snær Stefánsson, leikjahæsti leikmaður Akureyrar Handboltafélags. Leikurinn var sá 156. í röðinni fyrir félagið sem stofnað var árið 2006 við sameiningu handknattleiksdeildar KA og Þórs. Andri Snær er á sínu áttunda tímabili með liðinu en hann hefur spilað með liðinu frá upphafi fyrir utan eitt og hálft tímabil þar sem hann lék með liði Odder í Danmörku.
Við óskum Andra Snæ til hamingju með þetta afrek og vonum að hann nái að bæta ansi mörgum leikjum við þetta met.
Hörður Fannar Sigþórsson átti metið en hann lék 155 leiki fyrir félagið áður en hann flutti til Færeyja þar sem hann leikur með liði Kyndils.
  Andri skorar í 156. leiknum. Mynd: Eyjólfur Garðarsson, Sport.is
|