Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Hamrarnir á sigurbraut

12. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góđ helgi hjá Hömrunum – tveir útisigrar

Hamrarnir léku tvo útileiki í 1. deildinni um helgina. Fyrri leikurinn var á föstudaginn í Laugardalshöllinni gegn Ţrótti. Ţróttarar voru sterkari ađilinn í fyrri hálfleik og voru tveim mörkum yfir í hálfleik, 14 – 12.

Í seinni hálfleik virtust Ţróttarar ćtla ađ klára leikinn, náđu 6 marka forystu og útlitiđ svart 22-16 og ţrettán mínútur til leiksloka. Ţá tóku Hamrarnir til sinna ráđa, jöfnuđu í 23-23 og kláruđu leikinn međ tveggja marka mun, 23-25. Magnađur lokakafli sem Hamrarnir unnu 9-1.

Mörk Hamranna: Valdimar Ţengilsson 8, Arnţór Finnsson 5, Arnór Ţorri Ţorsteinsson 4, Óđinn Stefánsson 3, Ađalsteinn Halldórsson 2, Guđmundur Hermannsson 1, Kristján Sigurbjörnsson 1 og Róbert Sigurđarson 1.

Mörk Ţróttar: Viktor Jóhannsson 5, Leifur Óskarsson 4, Úlfur Kjartansson 4, Sigurđur Magnússon 3, Logi Ágústsson 2, Sigurbjörn Edvardsson 2, Kristmann Dagsson 2 og Elías Baldursson 1.

Á laugardaginn héldu Hamrarnir í Hafnarfjörđ ţar sem ţeir mćttu ÍH (í annađ sinn í vikunni). Heimir Örn Árnason kom inn í liđiđ, beint frá leik Akureyrar og Fram en hann var ekki međ í Ţróttarleiknum.
Skemmst er frá ţví ađ segja ađ leikurinnn var jafn í fyrri hálfleik og stóđu leikar 11-11 í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku Hamrarnri völdin á vellinum, ÍH skorađi einungis eitt mark fyrstu 15 mínúturnar og sigur Hamrarnna aldrei í hćttu, lokatölur 19-22.

Mörk Hamranna: Arnţór Finnsson 4, Almar Bjarnason 3, Bernharđ Jónsson 3, Heimir Örn Árnason 3, Valdimar Ţengilsson 3, Ađalsteinn Halldórsson 2, Arnór Ţorsteinsson 2, Guđmundur Hermannsson 2 og Baldur Halldórsson 1.

Mörk ÍH: Bjarki Jónsson 4, Sigurđur Gunnar Njálsson 4, Ţórir Bjarni Traustason 4, Ísak Örn Einarsson 2, Stefán Tómas Ţórarinsson 2, Ţorgeir Björnsson, Guđni Siemsen og Sigurđur Ţorgeirsson allir međ 1.

Ţar međ hafa Hamrarnir unniđ ţrjá leiki í röđ og hafa 6 stig eftir 5 leiki í deildinni.


Elías Már ţjálfari Hamranna hvetur sína menn gegn ÍH um síđustu helgi

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson