 Til hamingju Heiddi og Sissi

| | 14. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSigþór Árni og Heiðar Þór í úrvalsliði 4. umferðarÍ gær lauk 4. umferð Olís deildar karla með leik ÍBV og HK en honum var frestað á sínum tíma. Vefurinn fimmeinn.is er búinn að velja úrvalslið þeirrar umferðar og á Akureyrarliðið tvo fulltrúa í liðinu en það eru Sigþór Árni Heimisson og Heiðar Þór Aðalsteinsson.
Leikur Akureyrar í 4. umferð var gegn Val þar sem þeir félagar áttu flottan leik.
En úrvalsliðið að mati fimmeinn.is er þannig skipað: Markvörður: Svavar Már Ólafsson, ÍR Hægri horn: Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV Hægri skytta: Arnar Birkir Hálfdánsson, ÍR Línumaður: Gunnar Harðarson, Stjarnan Miðja: Sigþór Árni Heimisson, Akureyri Vinstri horn: Heiðar Þór Aðalsteinsson, Akureyri. Vinstri skytta: Guðmundur Hólmar Helgason, Valur.
Við óskum Sissa og Heidda til hamingju með útnefningarnar svo og öllum ofantöldum leikmönnum. Sigþór Árni valinn leikmaður Akureyrarliðsins í leiknum
 Heiðar Þór fagnar marki í leiknum
|