 Ţrándur var markahćstur í dag
| | 16. október 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarAuđveldur sigur FH í HöllinniFH-ingar sóttu Akureyringa heim í Höllina á Akureyri í kvöld og sóttu tvö mikilvćg stig. Jafnt var á fyrstu tölum leiksins en um miđjan fyrri hálfleik sigldu FH-ingar frammúr og litu aldrei til baka. Eftirfarandi umfjöllun er ćttuđ frá Siguróla Magna Sigurđssyni.
Ţađ var margt um manninn í Höllinni í kvöld ţegar ađ „erkifjendur“ Akureyri Handboltafélags komu í heimsókn. Leikurinn byrjađi fjörlega og var ansi hrađur. Heimamenn byrjuđu íviđ betur og skoruđu auđveld mörk á FH-ingana. Ţađ breyttist hinsvegar ansi fljótlega, ţví í stöđunni 6-6 á 13. mínútu leiksins skelltu FH-ingar í lás. Ţeir Andri Berg og Ísak Rafnson í miđjublokkinni lokuđu á allt sóknarspil Akureyringa og börđu úr ţeim sjálfstraustiđ. Akureyringar skoruđu ekki í 14 mínútur á međan FH kom međ sjö mörk í röđ og breytti stöđunni í 13-6. Sex marka munur var í hálfleik og var fjölmörgum áhorfendum ekki skemmt. Bergvin Ţór Gíslason mćttur í sóknina eftir langa fjarveru og skorađi tvö góđ mörk Ljóst var ađ seinni hálfleikurinn yrđi mikil brekka fyrir heimamenn og gerđu ţeir sér ennţá erfiđara fyrir í upphafi međ ţví ađ tapa boltanum oft á glórulausan hátt. FH komst mest í 8 marka forskot en ţá rönkuđu heimamenn örlítiđ viđ sér, ţó án ţess ađ gera alvöru atlögu ađ FH. Ţrátt fyrir ađ FH vćru tveimur mönnum fćrri tókst Akureyringum ekki ađ skora, ţetta var bara ekki ţeirra kvöld. Akureyri minnkađi mest niđur í fimm mörk en lengra komust ţeir ekki. Hafnfirđingar léku viđ hvurn sinn fingur og höfđu gaman ađ á međan heimamenn virkuđu pirrađir og eyddu jafnvel allt of miklu púđri í slaka dómara leiksins.
Lokatölur urđu 27-20 og sanngjarn sigur FH stađreynd. FH-ingar áttu svör viđ flestum sóknarađgerđum heimamanna í dag og skoruđu oft og tíđum glćsileg mörk. Hjá Akureyri var ákveđiđ andleysi sem einkenndi og jafnvel pirringur. Ţeir hafa átt betri daga og vita ţađ sennilega best sjálfir. Ţrándur Gíslason var atkvćđamikill á línunni í seinni hálfleiknum Mörk Akureyrar: Ţrándur Gíslason 5, Heiđar Ţór Ađalsteinsson 4 (3 úr vítum), Brynjar Hólm Grétarsson 3, Sigţór Árni Heimisson 3, Bergvin Ţór Gíslason 2 , Kristján Orri Jóhannsson 2 , Sverre Jakobsson 1. Tomas Olason varđi 16 skot í markinu, ţar af eitt vítakast.
Mörk FH: Ísak Rafnsson 6, Ragnar Jóhannsson 5, Benedikt Reynir Magnússon 5, Magnús Óli Magnússon 4, Ásbjörn Friđriksson 4 (2 úr vítum), Daníel Matthíasson 2, Halldór Ingi Jónasson 1. Ágúst Elí Björgvinsson varđi 14 skot í markinu. |