 Til hamingju Sissi
| | 7. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarSigþór Árni í úrvalsliði 1.-9. umferðar hjá fimmeinn.isÞó að enn eigi eftir að spila einn leik í 9. umferð Olís-deildar karla þá hafa forsvarsmenn vefsíðunnar fimmeinn.is valið úrvalslið umferða 1-9 eða fyrsta þriðjungs deildarkeppninnar. En leik ÍBV og Fram sem vera átti í Eyjum í gær var frestað vegna ófærðar og er settur á dagskrá 24. nóvember.
Akureyri á einn fulltrúa í liðinu en það er Sigþór Árni Heimisson í stöðu leikstjórnanda en Sissi hefur heldur betur vakið athygli með frábærri spilamennsku það sem af er.
Annars er úrvalslið þeirra á fimmeinn.is þannig skipað:
Markvörður: Davíð Svansson, Aftureldingu Vinstri hornamaður: Benedikt Reynir Kristinsson, FH Vinstri skytta: Björgvin Hólmgeirsson, ÍR Leikstjórnandi: Sigþór Árni Heimisson, Akureyri Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Aftureldingu Hægri hornamaður: Theódór Sigurbjörnsson, ÍBV Línumaður: Tryggvi Þór Tryggvason, HK
Þar að auki var Björgvin Hólmgeirsson valinn besti leikmaður þessara umferða.
Við óskum Sigþóri Árna til hamingju með útnefninguna sem og öllum ofantöldum leikmönnum. Sissi búinn að splundra vörn Stjörnunnar
|