Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Haukar eru stórveldi í íslenska handboltanum

16. nóvember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Heimaleikur gegn Haukum á mánudaginn

Ţađ er stórliđ Hauka sem er mótherji Akureyrar á mánudaginn. Fyrir leikinn eru liđin í 5. og 6. sćti Olís deildarinnar, Haukar međ 11 stig en Akureyri 10. Liđin mćttust í Hafnarfirđi 21. september og ţar unnu Haukar eins marks sigur í hörkuleik eftir ađ Akureyri hafđi leitt međ ţrem mörkum í hálfleik.
Haukaliđiđ hefur veriđ nokkuđ sveiflukennt og afraksturinn ţađ sem af er mótsins hefur trúlega veriđ undir vćntingum ţeirra sjálfra, fjórir sigrar, ţrjú jafntefli og ţrír tapleikir.
Í síđustu tveim umferđum unnu ţeir raunar sannfćrandi sigra, unnu Fram stórt á heimavelli 26-13 og HK örugglega á útivelli 20-31. Ţar á undan töpuđu ţeir á heimavelli gegn ÍBV.

Ţjálfari Hauka líkt og síđasta tímabil er Patrekur Jóhannesson sem jafnframt er landsliđsţjálfari Austurríkis. Haukar áttu frábćrt tímabil í fyrra, urđu bikarmeistarar og deildarmeistarar en töpuđu úrslitaeinvíginu gegn ÍBV međ einu marki í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

Haukar misstu tvo mikilvćga leikmenn í sumar, markahrókurinn Sigurbergur Sveinsson hélt til Ţýskalands og Elías Már Halldórsson er sem kunnugt er í herbúđum Akureyrar ţetta tímabil. Ađ öđru leiti má segja ađ Haukaliđiđ sé ekki mikiđ breytt frá ţví í fyrra. Ţeir endurheimtu línumanni Heimi Óla Heimisson frá Svíţjóđ og ţá fengu ţeir ungan og kanski lítt kunnan leikstjórnanda, Janus Dađa Smárason frá Danmörku en hann er uppalinn Selfyssingur.

Skytturnar Adam Haukur Baumruk og Árni Steinn Steinţórsson eru markahćstir Hauka í deildinni međ 45 og 43 mörk ţađ sem af er. Ţar á eftir koma línumađurinn Heimir Óli Heimisson 27 mörk, skyttan Ţröstur Ţráinsson 25 mörk og leikstjórnandinn Janus Dađi Smárason 24 mörk.

Árni Steinn er gríđarlega öflugur og hefur veriđ viđlođandi landsliđiđ upp á síđkastiđ, Adam Haukur hefur veriđ ađ fá stćrra og stćrra hlutverk í liđinu og ţá má geta ţess ađ Janus Dađi var nú fyrir stuttu valinn efnilegasti miđjumađur fyrsta hluta Olís deildarinnar af vefnum fimmeinn.is.


Patrekur og lykilmenn hans, Árni Steinn, Adam Haukur og Janus Dađi

Í síđustu tveim leikjum Hauka höfđu Adam og Árni steinn reyndar frekar hćgt um sig, á móti Fram var Janus Dađi Smárason markahćstur međ 7 mörk en á móti HK var Tjörvi Ţorgeirsson međ 8 mörk og Heimir Óli međ 6.
Markverđir Hauka ţeir Einar Ólafur Vilmundarson og Giedrius Morkunas hafa veriđ mjög stöđugir í leik sínum á bak viđ öfluga vörn Haukanna.

Akureyrarliđiđ endurheimtir Elías Má Halldórsson sem tók út leikbann í síđasta leik og vonandi nćr Atli ađ stilla upp sínu sterkasta liđi í leiknum en nokkrir leikmenn voru tćpir fyrir síđasta leik en hafa nú fengiđ nokkra daga til viđbótar til ađ koma til baka. Allavega ţá er hćgt ađ lofa hörkuleik í Höllinni á mánudagskvöldiđ en leikurinn hefst klukkan 19:00.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson