Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Brynjar verður lengur frá en menn vonuðust til

3. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifar

Brynjar úlnliðsbrotinn, líklega ekki meira með

Hin unga og efnilega skytta, Brynjar Hólm Grétarsson, er brotinn á úlnlið og leikur líklega ekki meira á tímabilinu samkvæmt fyrstu upplýsingum. Brynjar meiddist í leik gegn Haukum þann 17. nóvember eins og reyndar fleiri leikmenn Akureyrar.

Í fyrstu var ekki talið að meiðslin væru mjög alvarleg en Brynjar hefur ekki spilað í síðustu tveimur leikjum liðsins. Nú hefur hinsvegar komið í ljós að hann er úlnliðsbrotinn og verður lengi frá.

Brynjar var kominn með 22 mörk fyrir Akureyrarliðið í vetur í 9 leikjum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson