 Atli er sáttur með að fá frí í deildinni
| | 21. desember 2014 - Akureyri handboltafélag skrifarViðtöl eftir leik FH og AkureyrarFH og Akureyri mættust í síðustu umferðinni fyrir jólafrí og eftir sveiflukenndan leik fóru heimamenn með sigur af hólmi, 26-23. Akureyri hefur verið í miklum meiðslavandræðum og eru menn fríinu fegnir. Það hafa oft verið fleiri fjölmiðlamenn heldur en voru á leiknum en Atli Hilmarsson var tekinn í video viðtal hjá bæði mbl.is sem og sport.is.
Guðmundur Hilmarsson á mbl.is tók viðtal við Atla Hilmarsson og Ágúst Elí Björgvinsson markvörð FH.
Safna kröftum og heilsu Atli Hilmarsson þjálfari Akureyringa segir fríið í deildinni sem fram undan er mjög kærkomið en norðanliðið hefur þurft að glíma við mikil meiðsli. Atli sá sína menn tapa fyrir FH-ingum í Kaplakrika í kvöld. 26:23.
Við vorum klaufar í stöðunni 13:8 yfir. Við vorum þá að klikka úr dauðafærum og rétta boltann í hendurnar á þeim. FH gekk á lagið og skoraði sex mörk í röð. Við erum þunnskipaðir eins og allir sjá en það er engin afsökun. Ég var ánægður með strákana á lokakaflanum en því miður dugði það ekki til, sagði Atli við mbl.is en allt viðtalið má sjá á myndskeiðinu.
Býr meira í liðinu Ágúst Elí Björgvinsson stóð vaktina vel í FH markinu í kvöld þegar FH-ingar unnu þriggja marka sigur á Akureyringum í Olís-deildinni.
Við byrjuðum leikinn ekkert sérstaklega vel. Við fórum illa með færin og vörnin fór í gang fyrr en á 20. mínútu. Við náðum sem betur fer að laga okkar leik og erum á leið í deildabikarinn sem var eitt af markmiðum okkar. Við vildum hins vegar hafa gert betur á móti toppliðunum. Það býr meira í liðinu og nú þurfum við bara að æfa vel í fríinu og mæta sterkari til leiks eftir það, sagði Ágúst Elí við mbl.is eftir leikinn en hann varði 17 skot í leiknum og þar af tvö vítaköst.
Þorsteinn Haukur Harðarson tók viðtal við Atla Hilmarsson og Ísak Rafnsson leikmann FH fyrir sport.is.
Atli Hilmarsson: Fór með sex leikmenn til læknis fyrir leikinn Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyringa, var skiljanlega svekktur eftir tapið gegn FH í kvöld. Nú hefst langt frí í deildinni og Atli tekur fríinu fagnandi enda með marga leikmenn á meiðslalistanum.
Ísak Rafnsson: Ég er bara svo ánægður Ísak Rafnsson, leikmaður FH, var hrikalega ánægður eftir sigurinn gegn Akureyri í Olís-deild karla í kvöld.
|