 Heiđar Ţór var markahćstur í leiknum
| | 13. febrúar 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarFimm marka tap gegn AftureldinguMosfellingar komu fram hefndum fyrir tapiđ gegn Akureyri fyrr í vetur ţegar liđin mćttust í gćrkvöldi. Byrjun leiksins var ekki sannfćrandi hjá Akureyrarliđinu, sérstaklega ekki sóknarlega og eftir tuttugu mínútna leik var stađan 7-3 fyrir heimamenn í Aftureldingu en ţá hafđi Akureyri ekki skorađ mark í tíu mínútur. Sigţór Árni komst ekkert áleiđis gegn vörn Aftureldingar. Mynd: Kristinn Ingvarsson mbl.is Síđustu tíu mínútur fyrri hálfleiksins var hins vegar allt annađ ađ sjá til liđsins sem kom sér vel inn í leikinn og var munurinn ađeins eitt mark í hálfleik, 11-10.
Seinni hálfleikur fór vel af stađ, Nicklas jafnađi í 11-11 og nokkru síđar kom Heimir Akureyri yfir 12-13. Skömmu síđar jafnađi Heimir í 14-14 og rúmar tíu mínútur liđnar af hálfleiknum. Í kjölfariđ hrundi sóknarleikur Akureyrar og Afturelding gerđi í raun út um leikinn međ fimm mörkum í röđ, stađan orđin 19-14. Lokatölur síđan býsna öruggur sigur Aftureldingar 22-17.
Eins og tölurnar bera međ sér var sóknarleikur Akureyrar arfaslakur, fjölmargir tapađir boltar, dauđafćri fóru forgörđum og ţrjú vítaköst í súginn. Vörnin stóđ fyrir sínu en mađur liđsins var klárlega Tomas Olason sem átti frábćran leik í markinu, međ um 20 varin skot hreinlega bjargađi hann liđinu frá niđurlćgingu. Tomas varđi tvö vítaköst og fjölmörg hrađaupphlaup heimamanna.
Mörk Akureyrar: Heiđar Ţór Ađalsteinsson 5 (3 úr vítum), Nicklas Selvig 4, Heimir Örn Árnason 3, Kristján Orri Jóhannsson 3 (1 úr víti), Bergvin Ţór Gíslason og Halldór Logi Árnason 1 mark hvor. Tomas Olason 19 varin skot ţar af 2 vítaköst.
Mörk Aftureldingar: Örn Ingi Bjarkason 8, Jóhann Jóhannsson 4, Birkir Benediktsson 3, Pétur Júníusson 3, Gestur Ingvarsson 2, Ágúst Birgisson og Böđvar Páll Ásgeirsson 1 mark hvor. Davíđ Hlíđdal Svansson varđi 15 skot í markinu, ţar af 1 víti.
Eftir leik kvöldsins er ljóst hvernig leikjaskipulag deildarinnar verđur í framhaldinu og svo skemmtilega vill til ađ liđin mćtast aftur í Mosfellsbćnum á sunnudaginn og verđum viđ ađ vona ađ liđiđ nái ţá ađ halda fullum dampi út heilan leik. Ţrándur í hörđum slag viđ Örn Inga markakóng Aftureldingar. Mynd: Kristinn Ingvarsson mbl.is
|