 Handboltaveisla framundan
| | 25. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarTaktu mánudaginn frá - þér er boðið á leik Akureyrar og FH Það er rétt að koma þeim skilaboðum á framfæri strax að öllum er boðið í Íþróttahöllina á mánudagskvöldið þegar Akureyri tekur á móti FH í síðasta heimaleiknum í Olís-deildinni. Við vonumst að sjálfsögðu til að fá troðfullt hús og dúndrandi stemmingu enda er hart barist um að klifra upp stigatöfluna í Olís-deildinni.
Það er rétt að ítreka það að Akureyri er öruggt í úrslitakeppnina og getur ekki hafnað neðar en í 7. sæti deildarinnar en á fræðilegan möguleika á að ná upp í 4. sæti ef allt fer á besta veg.
Leikurinn á mánudagskvöldið hefst klukkan 19:30 en hann er einmitt liður í næstsíðustu umferð deildarinnar en það er krafa að allir leikir í tveim síðustu umferðunum fari fram á sama tíma.
Áður en kemur að ofangreindum leik gegn FH fer Akureyrarliðið í Hafnarfjörð á laugardaginn og spilar þar við Hauka og hefst sá leikur klukkan 16:00 í Schenkerhöllinni. Lokaumferð Olís-deildarinnar verður svo fimmtudaginn 2. apríl en þá fara strákarnir suður og mæta ÍR í Breiðholtinu.
Það er sem sé þétt prógram framundan hjá Akureyrarliðinu, þrír leikir á sex dögum og til mikils að vinna í þeim öllum. Þeir sem komu í Íþróttahöllina síðasta laugardag og sáu sigurleikinn gegn ÍBV urðu vitni að stórkostlegri skemmtun og frábærum leik Akureyrarliðsins. Vonandi var það forsmekkurinn að því sem er framundan.Haukaleikurinn á laugardaginnÞað er óhætt að segja að leikir Akureyrar og Hauka hafa í gegnum tíðina boðið upp á hasar og spennu. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, í fyrri leiknum sem var heimaleikur Hauka unnu þeir eins marks sigur 24-23 en hér í Höllinni vann Akureyri frækinn sjö marka sigur, 28-21.
Hér að neðan er einmitt hægt að skoða meðfylgjandi myndband af æsilegum lokasekúndum í leik liðanna frá 8. desember 2011. Þegar aðeins ein og hálf mínúta er eftir af leiknum eru Haukar yfir 18-19 en Akureyri hinsvegar gafst ekki upp og kláraði leikinn með stæl! Bjarni Fritzson skoraði magnað mark í horninu áður en Hörður Fannar skoraði af línunni á lokasekúndunni og allt gjörsamlega tryllist í Höllinni! – Sjón er sögu ríkari!
2. flokkur með úrslitaleik í Höllinni á laugardaginnStrákarnir í 2. flokki eru í hörðum slag um að ná 2. sætinu í sinni deild og þurfa nauðsynlega á stigi eða stigum að halda þegar þeir mæta Stjörnunni klukkan 12:30 í Íþróttahöllinni. Stjarnan hefur þegar tryggt sér efsta sæti deildarinnar en Grótta og Akureyri eru jöfn að stigum í 2.-3. sæti, Grótta á eftir einn leik en Akureyri á tvo eftir, Stjörnuleikinn og frestaðan leik gegn KR.Hamrarnir með úrslitaleik á föstudaginnÞað er líka fjör í 1. deildinni en þar fara liðin sem hafna í 2.-5. sæti í umspil um sæti í úrvalsdeild næsta ár. Hamrarnir sitja sem stendur í 5. sætinu en KR í því 6. með sama stigafjölda. Þessi lið mætast einmitt í KR heimilinu á föstudaginn klukkan 19:30 og ljóst að sigurvegarinn í þeim leik fær sæti í umspilinu. Við gerum ráð fyrir að verða með beina textalýsingu frá leiknum hér á heimasíðunni á föstudaginn.Þrír heimaleikir hjá KA/Þór um helginaKonurnar eru ekki heldur aðgerðalausar um helgina. Á dagskrá eru þrír heimaleikir. Meistaraflokkur KA/Þór tekur á móti toppliði Gróttu á laugardaginn klukkan 13:30. 3. flokkur KA/Þór spilar tvo leiki, fyrst gegn Haukum klukkan 19:30 á föstudaginn og síðan gegn Gróttu klukkan 12:30 á sunnudaginn. Allir þessir leikir eru í KA heimilinu.Fullt af leikjum hjá strákunum í 3. og 4. flokki| Dagur | Tími | Mót | Flokkur | Völlur | Leikur | | Fös. 27.mars | 14.00 | 3.ka 2.deild | 3.fl.ka | KA heimilið | KA 1 - ÍR | | Fös. 27.mars | 15.30 | 3.ka 3.deild | 3.fl.ka | KA heimilið | KA 2 - ÍR 2 | | Fös. 27.mars | 17.15 | 4.ka Y 2.deild | 4.fl.ka. | Síðuskóli | Þór - ÍR 2 | | Fös. 27.mars | 18.45 | 4.ka Y 1.deild | 4.fl.ka. | Íþróttahöllin | KA 1 - ÍR 1 | | | | | | | | | Lau. 28.mars | 10.00 | 3.ka 3.deild | 3.fl.ka | KA heimilið | KA 2 - ÍR 2 | | Lau. 28.mars | 11.30 | 3.ka 2.deild | 3.fl.ka | KA heimilið | KA 1 - ÍR | | Lau. 28.mars | 14.30 | 4.ka Y 3.deild | 4.fl.ka. | Síðuskóli | KA 2 - ÍR 3 |
Þannig að það er af nógu að taka hjá handboltaáhugamönnum á Akureyri næstu dagana.
|