 Sverre var frábær í vörninni í dag og Tomas magnaður í markinu

| | 28. mars 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarMögnuð vörn í frábærum sigri á ÁsvöllumAkureyri mætti Haukum á Ásvöllum í gríðarlega mikilvægum leik enda ekki bara tvö stig í boði heldur einnig að hafa betur í innbyrðisviðureignum liðanna. Akureyri lék einkar vel og mjög skynsamlega sem skilaði sanngjörnum fimm marka sigri í hús og Akureyri hoppar upp í 5. sætið þegar tvær umferðir eru eftir í deildinni.
Mikil barátta einkenndi leikinn og það var ljóst að bæði lið myndu selja sig dýrt. Jafnt var á öllum tölum fyrstu 18 mínútur leiksins þegar staðan var 7-7. Tomas byrjaði vel í leiknum og hafði á þessum kafla tekið nokkur góð skot og þar á meðal tvö vítaköst. Varnarleikurinn var til fyrirmyndar og fór Sverre fyrir sínum mönnum.
Akureyri gaf svo í og náði að loka gjörsamlega á Haukana á meðan sóknin hélt áfram að gefa mörk. Hálfleikstölur 10-13 fyrir okkar mönnum og forskotið verðskuldað. Sverre sáttur með Kristján Orra, báðir voru þeir frábærir í dag (mynd Eva Björk) Síðari hálfleikurinn byrjaði ekki nægilega vel, vörnin var fín en það vantaði herslumuninn til að klára dæmið og Haukarnir náðu að finna glufur. Tomas datt niður í markinu á meðan sóknarleikurinn var áfram stabíll. Haukarnir náðu því að minnka forskotið og þegar tæpar 20 mínútur lifðu leiks voru heimamenn allt í einu komnir yfir 18-16 og útlitið svart fyrir Akureyrarliðið.
Þá hinsvegar stigu menn upp og vörnin fór aftur að smella, gríðarleg barátta skein úr andlitum manna og leikurinn snerist við. Næstu fimm mörk voru Akureyrsk og eftir það var ekki aftur snúið. Haukar skoruðu einungis tvö mörk það sem eftir lifði leiks á meðan Akureyri gekk á lagið og kláraði dæmið með glæsibrag.
Lokatölur 20-25 og ótrúlega mikilvægur sigur staðreynd. Fyrir utan fyrstu 10 mínútur síðari hálfleiks var spilamennska Akureyrar virkilega góð og ljóst að liðið mun standa sig frábærlega ef það nær að halda þessum dampi áfram.
Frábær vörn og góð markvarsla Tomasar í markinu skópu þennan sigur en það skal þó ekki gleyma því að sóknarleikurinn var skynsamur og greinilegt að menn eru farnir að passa upp á það að fækka glötuðum boltum.
Kristján Orri var magnaður eins og maður er farinn að venjast og var markahæstur með 7 mörk. Hinsvegar vel ég Sverre og Tomas menn leiksins en þeir voru frábærir og æðislegt að fylgjast með baráttunni og viljanum hjá þeim í dag. Sigrinum var fagnað vel og innilega! (mynd Eva Björk) Nú er bara að klára deildina með sóma, tryggja sér allavega 5. sætið en með sigri á FH í næsta leik sem er nú strax á mánudaginn er góður möguleiki á að stela 4. sæti deildarinnar sem myndi gefa heimaleikjarétt í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. |