 Stærsti leikur tímabilsins
| | 10. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – ÍR 2. leikur úrslitannaÞað styttist í stórleikinn, hann hefst klukkan 19:00 og væntanlega hefur ekki farið framhjá neinum að Akureyri verður að sigra í kvöld og þarf stuðning til að klára verkið. Áhorfendur eru okkar áttundi maður á vellinum og gefa leikmönnum svakalegan aukakraft! Þannig að nú treystum við á að handboltaáhugamenn norðurlands flykkist í Höllina og leggi sitt lóð á vogarskálarnar til að við fáum alvöru handbolta lengra fram á vorið!
Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki eiga heimangengt verðum við með beina textalýsingu sem birtist hér á heimasíðunni vel fyrir leik. Eins og áður segir þá hefst leikurinn klukkan 19:00 í Höllinni í kvöld, ekki láta þig vanta!
|