Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Brynjar er gjaldgengur með 2. flokki

14. apríl 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Leiknum gegn FH frestað til miðvikudags

Strákarnir í 2. flokki áttu að leika í dag, þriðjudag, gegn FH í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leiknum hefur hins vegar verið frestað um sólarhring þannig að nýr leiktími er klukkan 18:30 miðvikudaginn 15. apríl. Leikið verður í Kaplakrika, heimavelli FH, en á þessu stigi er aðeins einn leikur þannig að það er allt undir í honum.

Strákarnir í 2. flokki enduðu í 2. sæti í 2. deildinni og tryggðu sér þannig síðasta sætið inn í úrslitakeppnina en FH varð Deildarmeistari í 1. deildinni. Það er því ljóst að verkefnið er erfitt en allt getur gerst í svona leikjum. Við hvetjum alla sem geta til að kíkja í Kaplakrikann og styðja strákana.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson