 Var vatnssopa um að kenna gegn Austurríki 2010?

| | 7. júlí 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarVissir þú þetta um Hreiðar Levý?Markvörðurinn okkar hann Hreiðar Levý Guðmundsson var á dögunum tekinn í stutta kynningu í N4 dagskránni og komu þar fram 10 hlutir sem flestir vita eflaust ekki um kappann. Ýmislegt skemmtilegt kemur í ljós og er hægt að sjá þessar staðreyndir hér:
1. Er einstaklega áttavilltur.
2. Var annar flytjanda sigurlagsins í sjómannalagakeppni Rásar 2 árið 2005, lagið heitir Með sól í Stafni.
3. Var valinn einn af 10 bestu íþróttamönnum Gautaborgar árið 2008.
4. Hefur átt 12 mismunandi heimilisföng síðastliðin 10 ár - í 4 löndum.
5. "Var ekki að fá mér vatnssopa á lokasekúndunum á móti Austurríki á EM 2010 þegar þeir skoruðu jöfnunarmarkið yfir endilangan völlinn. Alveg satt!"
6. Týndi giftingarhringnum sínum á brúðkaupsdaginn. "Vaknaði daginn eftir með engan hring sem ég býst við að sé einhverskonar met."
7. Er uppalinn KR-ingur, sem vill stundum skolast aðeins til, þannig að þá er það komið á hreint.
8. Er mikill Brit-pop maður með Oasis og Radiohead fremsta meðal jafningja.
9. Finnst paprika vond.
10. Er frekar flughræddur "en verðlagning Flugfélagsins hræðir mig þó enn meira."
 |