 Handboltvertíðin fer að hefjast
| | 17. ágúst 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarOpna Norðlenska 27.-29. ágúst 2015Líkt og undanfarin ár fer handboltavertíðin af stað hér fyrir norðan með Opna Norðlenska æfingamótinu. Að þessu sinni taka þátt fjögur úrvalsdeildarlið, Afturelding, Fram og Grótta auk Akureyrar Handboltafélags.
Mótið hefst fimmtudaginn 27. ágúst en þá mætast Akureyri og Fram klukkan 20:00 í Íþróttahöllinni en Grótta og Afturelding eigast við í N1 höllinni í Mosfellsbænum áður en liðin halda hingað norður, sá leikur hefst klukkan 18:00.
Á föstudaginn verður blásið til leiks klukkan 18:30 með leik Fram og Aftureldingar en klukkan 20:00 mætast Grótta og Akureyri. Mótinu lýkur síðan á laugardaginn, klukkan 11:00 mætast Fram og Grótta en lokaleikurinn hefst klukkan 12:30 þar sem Akureyri og Afturelding eigast við.
Gróttumenn urðu deildarmeistarar í 1. deild síðastliðið vor undir stjórn Gunnars Andréssonar sem hefur þjálfað liðið síðastliðin tvö ár. Afturelding var spútnik lið Olísdeildarinnar í fyrra, enduðu í 2. sæti deildarinnar og fóru alla leið í úrslitaeinvígið gegn Haukum um Íslandsmeistaratitilinn. Þjálfari Aftureldingar er líkt og síðasta vetur Einar Andri Einarsson. Einar Andri á fundi með dómurum á síðustu leiktíð Það er svo góðkunningi okkar Guðlaugur Arnarsson sem kemur með lærisveina sína úr Safamýrinni en Gulli er að hefja sitt þriðja tímabil sem þjálfari Fram. Gulli segir sínum mönnum til Síðast en ekki síst mætir Sverre Andreas Jakobsson með Akureyrarliðið í fyrsta sinn sem aðalþjálfari en honum til aðstoðar er Ingimundur Ingimundarson. Sverre og Ingimundur fara yfir málin í leik gegn Aftureldingu í fyrra.
Líkt og áður þá er Norðlenska einn af dyggum stuðningsaðilum Akureyrar Handboltafélags.  |