 Guđlaugur ţarf ađ sćtta sig viđ 3. sćtiđ ađ ţessu sinni
| | 29. ágúst 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarNorđlenska: Grótta náđi jafntefli gegn FramNú var ađ ljúka leik Fram og Gróttu á lokadegi Opna Norđlenska mótsins. Eftir óskabyrjun Framara náđu Seltirningar ađ koma sér inn í leikinn og eftir dramatík á lokamínútum fóru leikar 28-28. Međ ţeim úrslitum tryggđi Grótta sér 2. sćtiđ á mótinu en Grótta og Fram enduđu međ 3 stig og bćđi međ -2 í markatölu en Seltirningar skoruđu 85 mörk á mótinu en Fram 77 og eru ţví fyrir ofan.
Framarar hófu leikinn mikiđ mun betur, léku fínan bolta á međan leikmenn Gróttu voru mjög mistćkir og leiđ ekki á löngu uns stađan var orđin 10-5. Framarar héldu forskotinu nćstu mínútur áđur en Gróttumenn löguđu stöđuna ađeins fyrir hálfleik, hálfleikstölur 16-13.
Grótta hóf síđari hálfleikinn af miklum krafti og jöfnuđu strax metin í 16-16 og var mikil spenna út allan leikinn eftir ţađ. Liđin skiptust á ađ leiđa leikinn en ţó aldrei međ meira en tveimur mörkum. Stefán Darri kom Fram yfir í 28-27 ţegar 45 sekúndur voru eftir en Guđni Ingvarsson jafnađi metin međ laglegu marki. Framarar höfđu 10 sekúndur til ađ skora sigurmarkiđ eftir ţađ en sókn ţeirra slök og jafntefli 28-28 stađreynd.
Eins og kom fram ţýđa úrslitin ţađ ađ Grótta nćr 2. sćtinu á mótinu á fleiri mörkum skoruđum og Fram endar í 3. sćti. Leikur Akureyrar og Aftureldingar skiptir ţá engu máli í lokastöđu mótsins, Afturelding sigrar mótiđ á međan Akureyri rekur lestina.
Mörk Fram: Ţorgrímur Smári Ólafsson 7, Ragnar Ţór Kjartansson 5 (5 úr vítum), Óđinn Ríkharđsson 4, Garđar Benedikt Sigurjónsson 4, Arnar Freyr Ársćlsson 4, Arnar Snćr Magnússon 2, Ólafur Ćgir Ólafsson 1 og Stefán Darri Ţórsson 1 mark.
Í markinu varđi Valtýr Már Hákonarson 7 skot og Kristófer Fannar Guđmundsson varđi 5 skot.
Mörk Gróttu: Finnur Stefánsson 6 mörk (4 úr vítum), Árni Árnason 5, Aron Dagur Pálsson 5, Vilhjálmur Hauksson 4, Styrmir Sigurđsson 3, Guđni Ingvarsson 3 og Kristján Karlsson 2 mörk.
Í markinu varđi Lárus Gunnarsson 9 skot og Stefán Huldarson 3 skot |