 Kristján Orri leggur allt í leikinn
| | 24. september 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarKristján Orri: Verðum hrikalega flottir í kvöld!Kristján Orri Jóhannsson, hinn magnaði hornamaður Akureyrar liðsins, er í stuttu viðtalið við Þorstein Hauk Harðarson á sport.is í dag í tilefni af leiknum gegn Haukum í kvöld. Um gengi liðsins það sem af er mótinu segir Kristján:
„Sóknarlega höfum við kannski ekki alveg verið nógu áræðnir, því fylgir að við höfum verið að fá á okkur of mikið af einföldum hraðaupphlaupum. Ásamt því þurfum við að halda betur út og vera einbeittir allan leikinn þar sem nokkrar mínútur á hælunum geta skipt sköpum í handboltaleik," segir Kristján Orri og bætir við.
„Vörn og markvarsla hefur verið mjög góð en eins og ég segi þá hefur okkur vantað örlitla áræðni í sóknarleikinn. Við höfum verið að vinna vel í því í vikunni og verðum hrikalega flottir í kvöld!" Kristján Orri var valinn maður Akureyrar eftir síðasta heimaleik Hvernig er mórallinn í hópnum eftir byrjunina? „Mórallinn er áfram mjög góður. Menn eru virkilega hungraðir í sigur."
Akureyri spilar heimaleiki sína í KA-heimilinu í stað þess að spila í Höllinni eins og undanfarin ár. „Persónulega þá lýst mér vel á það. Mér finnst gott að spila á dúknum og svo myndast líka gríðarlega góð stemning í húsinu."
Að lokum eiga, Akureyringar séns gegn Haukum í kvöld? „Já ekki spurning. Undirbúningurinn fyrir leikinn hefur verið góður, menn eru búnir að vera einbeittir á æfingum og höfum verið að vinna í þeim hlutum sem við þurfum að bæta. Við erum með ákveðin markmið fyrir hvern og einn leik sem við vinnum eftir." |