 Sverre þarf að undirbúa liðið fyrir Gróttu 2
| | 15. október 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri fékk Gróttu 2 í bikarnumDregið var í 32-liða úrslit Coca-Cola Bikarsins í kvöld. Akureyri dróst gegn Gróttu 2 og þarf því að fara í gegnum Seltirninga til að komast áfram í 16-liða úrslitin. Þar sem Grótta 2 er í neðri deild en Akureyri (liðið er reyndar ekki í deildarkeppninni) þá fær liðið sjálfkrafa heimaleikjaréttinn.
Mörg úrvalsdeildarlið sátu hjá og munu leika sinn fyrsta leik í 16-liða úrslitunum en aðeins Akureyri, ÍR og Víkingur voru í pottinum af þeim liðum sem leika í Olís deildinni.
Líklegt verður nú að þykja að Akureyri fari áfram í næstu umferð en þó er aldrei að vita hvað gerist í bikarnum. Stefnt er að leika leikinn í kringum 25.-26. október.
Annars lítur drátturinn í 32-liða úrslitum svona út: Selfoss - Valur 2 Mílan - Fjölnir 1 Víkingur - ÍH Haukar 2 - ÍBV 2 Grótta 2 - Akureyri Þróttur - Stjarnan ÍR - Fjölnir 2 Þróttur Vogum - KR
Haukar, Valur, ÍBV, Afturelding, Grótta, FH, Fram og HK sitja hjá að þessu sinni |