Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar á 146 landsleiki en nær vonandi að bæta við leikjum í Noregi

2. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hreiðar á landsliðsæfingum, æfingamót í Noregi

Íslenska landsliðið í handbolta hóf í dag æfingar fyrir Gulldeildina sem er sterkt æfingamót sem fer fram í Noregi næstu dagana. Markvörðurinn okkar hann Hreiðar Levý Guðmundsson er í hópnum og óskum við honum að sjálfsögðu góðs gengis.

RÚV sýnir leiki Íslands á mótinu en auk Íslands leika þar Danmörk, Frakkland og Noregur. Svona er leikjaplan Íslands:

Fim. 5. nóv. 2015 kl. 18:45 Ísland - Noregur (RÚV 2)
Lau. 7. nóv. 2015 kl. 14:45 Ísland - Frakkland (RÚV)
Sun. 8. nóv. 2015 kl. 19:30 Ísland - Danmörk (RÚV 2)

Hreiðar hefur verið magnaður það sem af er tímabili og hefur meðal annars verið valinn maður leiksins í liði Akureyrar alls fimm sinnum. Hann var einmitt valinn besti maður liðsins í síðasta leik en hann varði meðal annars tvö víti frá Ólafi Stefánssyni í leiknum og má sjá vörslurnar hér fyrir neðan:

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson