 Bergvin og Kristján Orri markahæstir í dag

| | 12. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifarMagnaður sigur á AftureldinguLeikur Akureyrar og Aftureldingar var frábær skemmtun fyrir áhorfendur enda mikil og góð stemming í húsinu. Akureyrarliðið var allsráðandi í upphafi leiks náði fjögurra marka forskoti 6-2 á upphafsmínútunum og virtust Mosfellingar engan vegin tilbúnir í slaginn.
Þessi munur hélst út fyrri hálfleikinn, fjögurra marka munur í hálfleik 13-9. Bergvin Þór Gíslason og Heiðar Þór Aðalsteinsson voru frábærir í fyrri hálfleiknum, hvor með fjögur mörk. Vörnin var öflug og hleypti ekki mörgum skotum í gegn. Þar fyrir aftan var Hreiðar Levý sterkur og tók afar mikilvæga bolta á meðan markvarsla Aftureldingar var nánast engin, 1 varið skot í hálfleiknum. Heiðar Þór með síðasta mark fyrri hálfleiks úr þröngu færi í horninu Dæmið virtist ætla að snúast við í upphafi seinni hálfleiks þar sem Afturelding byrjaði með látum og jafnaði leikinn í 13-13 með fyrstu fjórum mörkum hálfleiksins. Tveim úr frekar ódýrum vítaköstum og öðrum tveim úr hraðaupphlaupum.
Þá kviknaði á heimamönnum á ný, Bergvin Þór Gíslason braut ísinn með gegnumbrotsmarki og sá til þess að Akureyri hélt frumkvæðinu í leiknum. Jafnt var áfram, 14-14 og 15-15 eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Í kjölfarið komu þrjú mörk heimamanna og með frábærum lokakafla þar sem Hreiðar Levý hreinlega lokaði markinu lauk leiknum með fimm marka sigri 25-20 við gríðarlegan fögnuð í húsinu.
Akureyrarliðið átti lengst af skínandi leik ef frá er talinn upphafskafli seinni hálfleiks þar sem ekkert gekk. Heiðar Þór Aðalsteinsson var frábær í fyrri hálfleiknum en fékk lítið úr að moða sóknarlega í þeim seinni en hann bætti það upp í vörninni þar sem hann vann boltann hvað eftir annað og var verðlaunaður sem maður leiksins hjá Akureyrarliðinu.
Mörk Akureyrar: Bergvin Þór Gíslason og Kristján Orri Jóhannsson 6 mörk hvor, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Hörður Másson 4 hvor, Halldór Logi Árnason 2, Brynjar Hólm Grétarsson, Friðrik Svavarsson og Ingimundur Ingimundarson 1 mark hver. Hreiðar Levý Guðmundsson stóð í markinu og varði 13 skot. Tomas Olason kom inn og reyndi við vítakast.
Mörk Aftureldingar: Gunnar Þórsson 6(5 úr vítum), Birkir Benediktsson 5, Garðar Svansson 3, Þrándur Gíslason 2, Gestur Ólafur Ingvarsson 2, Jóhann Jóhannsson og Pétur Júníusson 1 mark hvor. Pálmar Pétursson varði 7 skot og Davíð Hlíðdal Svansson 1 skot.
Akureyri á útileik gegn Haukum á mánudaginn en síðan heimaleik gegn FH fimmtudaginn 19. nóvember.
|