Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Gömlu mennirnir stóðu fyrir sínu í mikilvægum sigri

14. nóvember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar

Magnaður viðsnúningur gegn Haukum árið 2007

Næsti leikur Akureyrar er útileikur gegn Íslandsmeisturum Hauka á mánudaginn klukkan 19:00. Þessi lið mættust í öðrum sjónvarpsleik í sögu Akureyrar þann 24. mars árið 2007. Það leit allt út fyrir að Akureyri myndi tapa leiknum en þegar tæpar 7 mínútur lifðu leiks leiddu Haukar 25-22 en magnaður endasprettur okkar manna tryggði sætan sigur.

Hér má sjá lokamínúturnar í þessum frábæra leik og Rúnar Sigtryggsson spilandi þjálfari Akureyrar á þessum tíma er svo tekinn tali eftir leik.

Markaskor Akureyrar: Goran Gusic 6 mörk (6 úr vítum), Nikola Jankovic 5, Magnús Stefánsson 5, Rúnar Sigtryggsson 3, Hörður Fannar Sigþórsson 2, Þorvaldur Þorvaldsson 2, Einar Logi Friðjónsson 2, Andri Snær Stefánsson 1, Aigars Lazdins 1 og Ásbjörn Friðriksson 1.

Hreiðar Levý Guðmundsson varði 20 skot í marki Akureyrar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson